Kveikjan Suðurland var formlega ræst á KickOff-fundi í Bankanum vinnustofu á Selfossi 8. september sl. Þrjú öflug fyrirtæki, Sláturfélag Suðurlands, Reykjagarður og Límtré Vírnet, taka þátt í fyrstu lotu verkefnisins sem hefur það að markmiði að efla nýsköpun innan starfandi fyrirtækja á Suðurlandi.
Kveikjan Suðurland er samstarfsverkefni Háskólafélags Suðurlands og Drift EA og hluti af Sóknaráætlun Suðurlands, með stuðningi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Verkefnið er hluti af Ignite Nordic á Íslandi eða Kveikjunni, sem Drift EA stýrir á landsvísu og tengir saman starfandi fyrirtæki og frumkvöðla, hérlendis og erlendis.
Þátttökufyrirtækin vinna með raunverulegar áskoranir úr eigin starfsemi og fá tækifæri til að leita lausna í samstarfi við frumkvöðla, nýsköpunarteymi og þekkingarsamfélagið. Í gegnum tengslanet Ignite Nordic geta þau jafnframt sótt þekkingu og lausnir út fyrir landsteinana.
„Það er sérstaklega ánægjulegt að hefja verkefnið með þessum öflugu fyrirtækjum á Suðurlandi. Við höfum fundið fyrir miklum áhuga bæði hjá fyrirtækjum og sveitarfélögum á svæðinu og væntum þess að fleiri komi inn í verkefnið í haust. Kveikjan Suðurland snýst um að skapa tengingar, vinna með raunverulegar áskoranir fyrirtækja og styðja við áframhaldandi verðmætasköpun í landshlutanum,“ segir Ingveldur Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Háskólafélags Suðurlands.

Fjölbreytt atvinnulíf Suðurlands
Að sögn Ingveldar endurspegla þátttökufyrirtækin fjölbreytt atvinnulíf Suðurlands. Sláturfélag Suðurlands er leiðandi matvælafyrirtæki, Reykjagarður sérhæfir sig í eldi, slátrun og úrvinnslu kjúklinga og Límtré Vírnet á Flúðum er öflugt iðnfyrirtæki á sviði framleiðslu og úrvinnslu byggingarefna.
Þá segir Ingunn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SASS að Kveikjan falli vel að áherslum Sóknaráætlunar Suðurlands um öflugt og fjölbreytt atvinnulíf. Með stuðningi SASS vinnur Háskólafélag Suðurlands nú að nýsköpunarstefnu fyrir Suðurland og verkefni á borð við Kveikjuna styðja vel við þá vinnu.
„Það skiptir máli að styðja við þau fyrirtæki sem þegar eru til staðar á Suðurlandi og gefa þeim svigrúm til að hugsa í nýjar áttir. Kveikjan skapar einmitt tækifæri til þess, að tengja fyrirtæki við frumkvöðla, þekkingu og nýjar hugmyndir, hérlendis og erlendis. Þetta fellur vel að þeirri vinnu sem við erum að leggja í nýsköpunarstefnu fyrir Suðurland og getur hjálpað okkur að skapa enn sterkari tengsl og ný tækifæri fyrir atvinnulífið á svæðinu,“ segir Ingunn.

Frá Svíþjóð til Suðurlands
Aðferðafræði Kveikjunnar á uppruna sinn í Svíþjóð og hefur verið nýtt víða á Norðurlöndunum. Drift EA hefur stýrt sambærilegu verkefni á Norðurlandi þar sem fyrirtæki hafa unnið með frumkvöðlum og nýsköpunarteymum að raunverulegum áskorunum.
„Þegar íslensk fyrirtæki opna dyrnar fyrir hugmyndum og hæfileikafólki utan eigin veggja geta orðið til tengingar sem enginn sá fyrir. Það er einmitt krafturinn í Kveikjunni og ástæðan fyrir því að við erum svo spennt að sjá hvað verður til á Suðurlandi,“ segir Sigmar Bjarni Sigurðarson, forstöðumaður Ignite Nordic á Íslandi hjá Drift EA.
Með fyrstu þátttökufyrirtækjunum er verkefnið nú komið af stað á Suðurlandi og stefnt er að því að fleiri fyrirtæki bætist við í haust.


