Dagbók til sjálfbærara lífs

Roadmap to Sustainable Living - samstarfsverkefni í fullorðinsfræðslu

Verkefnið "Leiðarvísir að sjálfbærum lífsstíl" eða Roadmap to sustainable Living er 18 mánaða samstarfsverkefni Erasmus+ í fullorðinsfræðslu og hófst með formlegum hætti þann 1. september 2025.

Háskólafélag Suðurlands stýrir verkefninu í samstarfi við Inštitut Središče zagovorništva í Sóveníu og Jedi Movement í Serbíu. Áhersla verkefnisins er á umhverfismál, sjálfbærni og inngildingu þar sem markmiðið er að fræða fólk um hvaða leiðir er hægt að fara í umhverfisvænni lífsstíl. Á sama tíma viljum við með þessu verkefni hvetja fólk af erlendum uppruna til þess að kynna sér sjálfbærni og hvaða lausnir eru til staðar til þess að spara bæði auðlindirnar okkar og peninga.

Fyrsta afurð verkefnisins er leiðarvísir (Roadmap to Sustainable Actions) sem er frábært mælitæki og leiðbeinandi skjal fyrir þá sem vilja gera betur, eða fræða aðra um kosti þess að tileinka sér sjálfbærari venjur.

Önnur og ekki síðri afurð verkefnisins er Dagbók til sjálfbærara lífs. Hún er góð viðbót við Leiðarvísinn þar sem hver og einn getur einbeitt sér enn frekar að aukinni sjálfbærni bæði í lífi og starfi.

Hér má nálgast ókeypis eintak af dagbókinni á íslensku, ensku, serbnesku og slóvensku.

LOGO_miðjusett

Hvernig virkar dagbókin?

Dagbókin er fyrst fremst leiðbeinandi fyrir þig sem notanda.

Hún hvetur þig til þess að hugsa aðeins út fyrir kassann, skoða venjurnar þínar og ýtir undir valdeflingu, það er getuna til þess að taka ábyrgar ákvarðanir. Hún inniheldur:

  • 9 mismunandi þemu sem snerta sjálfbærni á einn eða annan hátt.
  • 45 vikur sem hvetja þig til þess að gera litlar en mikilvægar breytingar á venjunum þínum.
  • 5 vikna tímabil sem er án þema svo þú getir valið út frá þeirri þörf sem hefur skapast í þínu lífi.
  • En er framhald af Leiðarvísinum og er tilvalin til þess að nota með honum eða sem sjálfsætt hjálpartæki.
  • Aðlagaðu hvert þema eftir þinni getu og njóttu ferilsins, ekkert þarf að vera fullkomið!

Hvernig fer ég að?

Nánari upplýsingar

Helga Kristín Sæbjörnsdóttir
helga@hfsu.is

Öll sem hafa áhuga á því að tileinka sér sjálfbærari lífshætti óháð getu og þekkingu. Allir geta lagt sitt af mörkum án þess að breyta miklu í daglegum venjum. Dagbókin hentar einstaklingum en getur líka nýst sem dagleg skráning innan teymis eða hóps sem vinnur að sameiginlegum markmiðum. Hver og einn sem vinnur með efnið mótar það og aðlagar þeim aðstæðum og þeim markhópum sem unnið er í hverju sinni.

Allt efni sem tengist leiðarvísinum er frítt, þar á meðal dagbókin. Við mælum með að vista efnið í tölvunni svo auðveldara sé að nálgast upplýsingar. Það má auðvitað prenta út eftir þörfum en við mælum þó með því að reyna að gera sem minnst af því umhverfisins vegna.

Öll sem hefja vegferð sína gera það án skuldbindingar og gefa einungis af sér þann tíma sem er rými fyrir í þeirra dagskrá. Við leggjum ríka áherslu á það að hvert skref til hins betra séu framfarir. Þetta er ekki spurning um fullkomnun, heldur einungis um að gera aðeins betur en áður.

Við viljum ítreka að allt efnið í þessum leiðarvísi er „lifandi“ og getur breyst með nýjum upplýsingum, rannsóknum eða vitneskju. Við reynum að halda því við eftir bestu getu, en ef þú hefur einhverjar hugmyndir eða ábendingar sem gætu komið að gagni viljum við endilega frétta af því.
Best er að gera það með því að senda tölvupóst á helga@hfsu.is eða hfsu@hfsu.is.

Markmiðin með verkefninu

Að hjálpa fólki að taka skrefin í átt að sjálfbærara lífi.
Að breyta góðum ásetningi í raunhæfar venjur.
Að gera sjálfbærni einfaldari, aðgengilegri og minna yfirþyrmandi.
Að styðja notendur með ráðum, markmiðum og framvinduskráningu.
Að hvetja til lítilla skrefa án sektarkenndar.
Að vekja fólk til umhugsunar og hvetja til speglunnar á daglegum venjum.