Frá hugmynd að framkvæmd
NÝSKÖPUNHáskólafélag Suðurlands vinnur að því að stuðla að og hvetja til nýsköpunar með verkefnum, fræðslu og viðburðum.
Við hvetjum einstaklinga og fyrirtæki til þátttöku í nýsköpunarverkefnum, tengjum saman atvinnulíf og þekkingarsamfélag og veitum ráðgjöf til þeirra sem vilja koma hugmyndum sínum áfram.
Hvort sem þú ert með fyrstu hugmynd, vantar aðstöðu, þarft upplýsingar um fjármögnunarleiðir eða með fyrirtæki sem vill þróa nýja lausnir þá leiðbeinum við þér að komast á næsta skref.

Nýsköpunarsetur
Aðstaða, ráðgjöf og stuðningur við að þróa hugmyndina áfram.
Nýsköpunarsetrið er fyrir þau sem vilja vinna markvisst að hugmynd eða verkefni og fá stuðning við næstu skref.
Í setrinu er boðið upp á vinnuaðstöðu og ráðgjöf sem tekur mið af þörfum hvers verkefnis. Nokkrir frumkvöðlar geta haft aðstöðu þar á sama tíma og þannig skapast tækifæri til samtals, tengslamyndunar og jafningjastuðnings.
Ráðgjöfin getur meðal annars snúið að þróun hugmyndar yfir í vöru og þjónustu, markaðsmálum, styrkjum og öðrum fjármögnunarleiðum. Við getum einnig aðstoðað við að finna rétta sérfræðinga og samstarfsaðila þegar þess er þörf.
Markmiðið er að hjálpa frumkvöðlum að móta hugmyndir sínar við að þróa þær yfir í framkvæmdastig og skapa grundvöll fyrir nýjar vörur, þjónustu og störf á Suðurlandi.
Allir sem hafa áhuga á að þróa hugmynd sína að vöru/þjónustu geta fengið aðstöðu í Nýsköpunarsetrinu, svo lengi sem rými er laust.
Í boði er skrifstofuaðstaða í herbergi með 4 vinnuborðum, nettenging, skjár, lyklaborð, mús og skrifborðsstóll. Frumkvöðlar koma með sínar eigin tölvur. Aðgangur að FabLab Selfoss í Fjölbrautaskóla Suðurlands í samráði við forstöðumann þess. Vinnuborð í Nýsköpunarsetrinu geta verið tvísetin. Aðgangur er að kaffistofu en viðkomandi koma sjálfir með kaffi og annað sem þeir vilja neyta þar. Einnig er aðgangur að fundarherbergjum með fjarfundarbúnaði.
Á meðan frumkvöðull er með aðstöðu í Nýsköpunarsetrinu hefur hann aðgang að ráðgjöfum HfSu. til að vinna að framgangi hugmyndar sinnar með þeim hætti sem hann metur bestan. Ráðgjafar HfSu. geta aðstoðað við að sækja um fjármagn til verkefna t.d. í Uppbyggingarsjóð Suðurlands, sjóði Rannís o.fl.
Starfsmenn Háskólafélags Suðurlands taka viðtal við umsækjendur í Nýsköpunarsetrinu og meta þörf þeirra á aðstoð og tímalengd samnings áður en gengið er frá samningi.
Í framhaldi er gerður samningur á milli frumkvöðuls og Háskólafélags Suðurlands um lengd tímabils, hvaða hluta verkefnis á sviði nýsköpunar, vöruþróunar og markaðsmála viðkomandi ætlar að vinna að í Nýsköpunarsetrinu og hvaða ráðgjöf viðkomandi getur leitað eftir hjá ráðgjöfum HfSu.
Í upphafi er gerður samningur um hversu lengi viðkomandi vill nýta sér aðstöðu í Nýsköpunarsetrinu og aðgang að ráðgjöfum. Tímabilið er lágmark einn mánuður í upphafi og hámark 6 mánuðir. Að tímabilinu loknu er þörfin fyrir framhaldið metin og hægt er að framlengja í allt að 12 mánuði.
Kostnaði er haldið í lágmarki. Greitt er lyklagjald fyrir kort kr. 2000 sem fæst endurgreitt við skil á korti. Mánaðarlegt gjald fyrir aðstöðu í Nýsköpunarsetrinu og aðgang að ráðgjöfum er á bilinu 10.000-15.000 kr./mánuði og fer eftir lengd samnings.
Nýsköpunarstefna Suðurlands
Sameiginleg stefna, frá hugmyndum að verðmætasköpun
Nýsköpunarstefna Suðurlands er fyrsta sameiginlega nýsköpunarstefna landshlutans. Hún var unnin af Háskólafélagi Suðurlands fyrir SASS í samstarfi og samráði við atvinnulíf, sveitarfélög, þekkingarsamfélag og stuðningskerfi nýsköpunar.
Markmið stefnunnar er að skapa öflugt og samkeppnishæft nýsköpunarumhverfi á Suðurlandi þar sem fleiri hugmyndir geta þróast í verkefni, fyrirtæki og ný verðmæti.
Í stefnunni eru átta aðgerðir sem ætlað er að styrkja samkeppnishæfni Suðurlands.
Átta aðgerðir
01.
Samstarfs- og samtalsvettvangur nýsköpunar á Suðurlandi
02.
Aukin nýting og aðgengi að styrkjum
03.
Verkfærakista sveitarfélaga fyrir nýsköpunarfyrirtæki
04.
Uppbygging fjármögnunarumhverfis og sjóða á Suðurlandi
05.
Uppbygging miðstöðvar nýsköpunarmenningar og atvinnuþróunar
06.
Hringrásarhagkerfi Suðurlands
07.
Uppbygging nýsköpunarmenningar í gegnum menntun
08.
Viðurkenning fyrir nýsköpun í starfandi fyrirtækjum
Nýsköpun innan fyrirtækja
Nýsköpun innan fyrirtækja er mikilvæg til að skapa aukin verðmæti og efla samkeppnishæfni. Hún getur líka falist í nýrri vöru, þjónustu, tækni, ferli eða lausn innan starfandi fyrirtækis.
Í gegnum verkefni á borð við Kveikjuna Suðurland tengjum við fyrirtæki við frumkvöðla, sprota, sérfræðinga og fræðasamfélag til að vinna að raunverulegum áskorunum og nýjum tækifærum.


Fab Lab, hugmyndir prófaðar
Í Fab Lab Selfoss er hægt að færa hugmynd frá teikningu yfir í frumgerð.
Fab Lab er stafræn smiðja þar sem frumkvöðlar, fyrirtæki, nemendur og almenningur fá aðgang að tækjum, þekkingu og aðstöðu til hönnunar, prófana og stafrænnar framleiðslu.
