Nýsköpun, kraftur og framtíðarsýn í sviðsljósinu á Uppsprettu Suðurlands

Uppspretta Suðurlands – hátíð vaxtar og verðmætasköpunar – fór fram á Sviðinu á Selfossi föstudaginn 6. nóvember. Þar kom saman fjölbreyttur hópur fólks úr atvinnulífi, stjórnsýslu og nýsköpunarumhverfinu til að ræða tækifæri, efla tengsl og beina sjónum að framtíð nýsköpunar á Suðurlandi. Meðal gesta voru þingmenn, fulltrúar sveitarstjórna, frumkvöðlar, fyrirtækjaeigendur og aðrir áhugasamir um þróun atvinnulífs og samfélags í landshlutanum.

Hátíðin var samstarfsverkefni Háskólafélags Suðurlands (HFSU), Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og Markaðsstofu Suðurlands. Markmið hennar var að skapa vettvang þar sem hugmyndir, reynsla og þekking mætast og stuðla þannig að auknu samstarfi, nýsköpun og verðmætasköpun á Suðurlandi.

Frumkvöðlar framtíðarinnar stigu á svið

Dagurinn hófst með lokaviðburði viðskiptahraðalsins Startup Landið, þar sem frumkvöðlateymi víðs vegar af landinu kynntu verkefni sín og viðskiptahugmyndir. Teymin höfðu undanfarna sjö vikur unnið markvisst að þróun hugmynda sinna með stuðningi sérfræðinga, leiðbeinenda og mentora.

Startup Landið er samstarfsverkefni landshlutasamtaka víðs vegar um landið og sér Háskólafélag Suðurlands um verkefnastjórn hraðalsins fyrir hönd SASS. Markmið verkefnisins er að efla frumkvöðlastarf á landsbyggðinni og skapa tækifæri fyrir hugmyndir til að vaxa og þróast, óháð búsetu.

Á lokaviðburðinum fengu gestir innsýn í fjölbreyttar hugmyndir og þann frumkvöðlakraft sem býr í landsbyggðunum. Jói G. stýrði viðburðinum og skapaði skemmtilega umgjörð um kynningar þátttakenda.

Opnun lokaviðburðar Startup Landið

Fyrsta nýsköpunarstefna Suðurlands kynnt

Einn af hápunktum dagsins var formleg kynning á fyrstu nýsköpunarstefnu Suðurlands, sem Háskólafélag Suðurlands hefur mótað fyrir SASS í víðtæku samráði við atvinnulíf, sveitarfélög, frumkvöðla og aðra hagaðila.

Nýsköpunarþing Uppsprettu hófst með opnunarávarpi Ingunnar Jónsdóttur, framkvæmdastjóra SASS, og í kjölfarið flutti Logi Már Einarsson, ráðherra nýsköpunarmála, ávarp þar sem mikilvægi nýsköpunar og öflugs stuðningsumhverfis var í forgrunni.

Margrét Polly Hansen, verkefnastjóri nýsköpunar hjá Háskólafélagi Suðurlands, kynnti síðan nýsköpunarstefnuna, tilgang hennar, helstu áherslur og þær aðgerðir sem lagðar eru til. Stefnan byggir á þremur grunnstoðum, viðhorfum, fjármagni og innviðum, og er ætlað að skapa sameiginlega sýn og skýrari farveg fyrir uppbyggingu nýsköpunar í landshlutanum.

Í kjölfarið fóru fram pallborðsumræður um stefnuna og mikilvægi þess að ólíkir hagaðilar taki höndum saman um að umbreyta áherslum hennar í raunverulegar aðgerðir.

Hægt er að kynna sér innihald stefnunar hér: Nýsköpunarstefna Suðurlands

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Íslands.

Fjölbreytt erindi um tækifæri nýsköpunar

Dagskrá nýsköpunarþingsins bauð upp á fjölbreytt og áhugaverð erindi þar sem nýsköpun var skoðuð frá ólíkum sjónarhornum.

Sesselja Barðdal, framkvæmdastýra Drift EA, fjallaði um nýsköpun í starfandi fyrirtækjum og mikilvægi þess að þróa nýjar lausnir innan atvinnulífsins. Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Orkídeu, beindi sjónum að nýsköpunartækifærum í dreifðum byggðum og þeim möguleikum sem felast í staðbundnum auðlindum og samstarfi.

Edda Konráðsdóttir, stofnandi Iceland Innovation Week og nýsköpunarráðgjafi, ræddi hvaða máli öflugt nýsköpunarumhverfi skiptir fyrir framþróun hugmynda og atvinnulífs. Þá fjallaði Ingunn Gunnarsdóttir frá Orku náttúrunnar um nýsköpun innan fyrirtækisins í erindinu Tendrum glóð á heiðinni.

Marta Rut Ólafsdóttir, meðstofnandi HorseDay sem varð til í Ölfusi, rakti vaxtarsögu snjallforritsins sem nú er notað af yfir 50.000 hestamönnum í 20 löndum. Hún undirstrikaði hversu dýrmætur Uppbyggingarsjóður Suðurlands var við að koma hugmyndinni af stað áður en stærri sjóðir og englafjárfestar komu að borðinu.

Karen Dröfn Kjartansdóttir var fundarstjóri nýsköpunarþingsins og leiddi gesti í gegnum dagskrána.

Pallborðsumræður um nýsköpunarstefnu Suðurlands

Samstarf sem skapar tækifæri

Uppspretta Suðurlands undirstrikaði mikilvægi þess að skapa vettvang þar sem atvinnulíf, frumkvöðlar, sveitarfélög og stuðningsaðilar geta hist, miðlað reynslu og myndað ný tengsl.

Viðburðurinn endurspeglaði jafnframt þann metnað sem er til staðar í landshlutanum til að efla nýsköpun og skapa ný tækifæri til vaxtar og verðmætasköpunar. Með kynningu nýsköpunarstefnunnar hefur verið lagður mikilvægur grunnur að áframhaldandi samstarfi og markvissri uppbyggingu nýsköpunarumhverfis á Suðurlandi.

Bakhjarlar Uppsprettu Suðurlands voru RARIK, Landsvirkjun og Orka náttúrunnar (ON) og færðu skipuleggjendur þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn við viðburðinn og uppbyggingu öflugs vettvangs fyrir nýsköpun og atvinnulíf á Suðurlandi.