Miðvikudaginn 2. nóvember sl stóð Hreiðrið frumkvöðlasetur fyrir frumkvöðlahádegishittingi #3 í Fjölheimum og í netheimum.
Á síðsta frumkvöðla hádegi þessa árs kom til okkar Sigurgeir Skafti Flosason tónlistarmaður og frumkvöðull. Hann stiklaði á stóru um hvað hann hefur verið að brasa í tónlist sl. 15 ár og fjallaði einnig um verkefni sín sem tengjast viðburðastjórnun. Að venju gátu gestir mætt í hús, fengið sér súpu og átt skemmtilegt spjall við frumkvöðulinn. Líkt og áður var spjallið í beinu streymi og er upptaka af því aðgengileg á Facebook síðu Hreiðursins.
Þessi hittingur var sá síðasti á þessu ári en frumkvöðlahádegin taka upp þráðinn þann 11. janúar 2023 með nýjum og áhugaverðum frumkvöðlum.