Lokapróf haustannar háskóla og framhaldsskóla eru nú í fullum gangi og því mikið um að vera í stofum Fjölheima. Um 230 nemendur í um 600 prófum nýta sér þá þjónustu að taka próf í Fjölheimum sem Háskólafélagið hefur boðið uppá allt frá stofnun og er skiptingin um það bil 90% háskólanemar og 10% framhaldsskólanemar.
Ingibjörg Ásta Rúnarsdóttir ber hitann og þungann af því gríðarlega skipulagi sem þarf til þess að svona verkefni gangi upp en auk þess koma inn tímabundnir starfsmenn í yfirsetu.
Þjónusta við nemendur hefur vaxið og dafnað með árunum en Háskólafélagið leggur allt kapp á að bjóða upp á gæða þjónustu og að Sunnlendingar geti stundað sitt nám og þreytt sín próf í heimabyggð.