Skip to content Skip to footer

Rektor Háskólans á Akureyri í heimsókn hjá Háskólafélagi Suðurlands

Fulltrúar Háskólans á Akureyri heimsóttu Háskólafélag Suðurlands nýverið þar sem rætt var um samstarfstækifæri í háskólanámi og þjónustu við nemendur.

Á fundinum voru Áslaug Ásgeirsdóttir rektor HA, Silja Jóhannesar Ástudóttir samskiptastjóri HA, Ingunn Jónsdóttir framkvæmdastjóri SASS, Díana Óskarsdóttir forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Ingveldur Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri Háskólafélagi Suðurlands og Helga Kristín Sæbjörnsdóttir verkefnastjóri Háskólafélags Suðurlands. Á fjarfundi tóku einnig þátt Hugrún Harpa Reynisdóttir forstöðumaður Nýheima þekkingarseturs, Eyrún Fríða Árnadóttir og Hörður Baldvinsson framkvæmdastjóri Þekkingarseturs Vestmannaeyja.

Á fundinum var rætt um hlutverk Háskólafélags Suðurlands, Nýheima þekkingarseturs og Þekkingarseturs Vestmannaeyja gagnvart háskólum og íbúum á sínum starfssvæðum á. Þekkingarsetrin hafa hlutverk gagnvart námi á háskólastigi um að hækka menntunarstig með því að bæta aðgengi að háskólanámi og stuðla að fjölbreyttu námsumhverfi á háskólastigi.

Rætt var um hvernig væri hægt að bæta þjónustu og styrkja það hlutverk að vera tengiliður háskóla inn á svæðin gagnvart nemendum, sveitarfélögum, stofnunum og atvinnulífi. Í því felst meðal annars að miðla upplýsingum um námsframboð, kynna fjarnám og háskólanám, veita námsaðstöðu og prófaþjónustu og styðja við þau sem stefna á háskólanám.

Til undirbúnings fundinum hafði Háskólafélagið safnað upplýsingum úr könnunum meðal stofnana og framhaldsskólanema á Suðurlandi. Niðurstöðurnar sýna meðal annars þörf fyrir sveigjanlegt nám, styttri námsleiðir, endurmenntun og aukna kynningu á háskólanámi. Fram kom m.a. áhugi á námi í heilbrigðis- og velferðargreinum, umönnun, kennslu, lögreglufræðum og öðrum greinum sem tengjast þörfum samfélagsins á Suðurlandi.

Einnig var rætt um mikilvægi þess að kortleggja betur þarfir atvinnulífs og stofnana í landshlutanum, meðal annars til að greina hvaða menntun og hæfni vantar hverju sinni. Slík kortlagning getur nýst við þróun námsframboðs, örnáms, endurmenntunar og annarra sveigjanlegra námsleiða.

Niðurstaða fundarins var að tækifæri séu til að efla samstarf HA og þekkingarsetranna á Suðurlandi með skýrari tengingum, reglulegri upplýsingamiðlun og betri greiningu á þörfum svæðisins. Þekkingarsetrin geta þar gegnt mikilvægu hlutverki sem brú milli háskóla, nemenda, atvinnulífs og stofnana í landshlutanum.