101. fundur

101. stjórnarfundur Háskólafélag Suðurlands haldinn í Fjölheimum þann 11.05.26 Fundargerð ritaði Helga Þorbergsdóttir.

Mætt: Guðmundur Ármann Pétursson, Helga Þorbergsdóttir, og Soffía Sveinsdóttir. Sæunn Stefánsdóttir og Hugrún Harpa Reynisdóttir boðuðu forföll. Einnig sat fundinn Ingveldur Sæmundsdóttir framkvæmdastóri HfSu.

 

1. Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Háskólafélags Suðurlands, sem kjörin var á aðalfundi félagsins þann 04.05 26. Í samræmi við breytingar sem gerðar voru á samþykktum félagsins á aðalfundi eru stjórnarmenn nú fimm.

 

Fyrir fundinum lágu tveir dagskrárliðir, annarsvegar um að stjórn skipti með sér verkum og hins vegar að ákveða tímasetningar stjórnarfunda.

Fyrir fundinum lá tillaga um að stjórnin skipti þannig með sér verkum að Guðmundur Ármann Pétursson taki að sér formennsku og Helga Þorbergsdóttir ritarastörf.

Tillagan samþykkt

Rætt var almennt um sögu og starfsemi félagsins, Guðmundur gerði stutta grein fyrir námi sínu og störfum. Ingveldur sagði frá ferð hennar og Pollýjar starfsmanns Háskólafélagsins á nýsköpunarráðstefnu í Færeyjum.

2. Dagskrárlið no. 2 um ákvörðun fastra funda stjórnar Háskólafélagsins var frestað til næsta fundar.

Fundi slitið