Dagana 6.–7. nóvember verður Uppspretta – hátíð atvinnulífs og nýsköpunar á Suðurlandi – haldin í Horseday-höllinni í Ölfusi í fyrsta skipti.
Markmið Uppsprettu er að leiða saman fyrirtæki, frumkvöðla, sveitarfélög og aðra sem láta sig atvinnuþróun og nýsköpun á Suðurlandi varða. Hátíðin verður vettvangur til að kynna fjölbreytta starfsemi, skapa ný tengsl og vekja athygli á því öfluga atvinnulífi sem er að finna í landshlutanum.
Með þátttöku gefst tækifæri til að:
- kynna fyrirtækið, vörur þess og þjónustu
- hitta önnur fyrirtæki og mögulega samstarfsaðila
- efla sýnileika fyrirtækisins á Suðurlandi
- taka þátt í samtali um framtíð atvinnulífs og nýsköpunar á svæðinu
Fyrri daginn er ráðstefna með megin áherslu á nýsköpun og sýningarsvæði fyrirtækja opnar. Seinni daginn er sýningarsvæðið opið almenningi.
Við hjá Háskólafélagi Suðurlands hvetjum fyrirtæki af öllum stærðum og úr ólíkum atvinnugreinum til að taka þátt og sýna þann fjölbreytileika, kraft og verðmætasköpun sem einkennir atvinnulíf Suðurlands.
Hvort sem markmiðið er að kynna vörur og þjónustu, byggja upp ný viðskiptatengsl, finna samstarfsaðila, ná til nýrra viðskiptavina eða einfaldlega auka sýnileika, þá er Uppspretta kjörinn vettvangur til þess.
Hátíðin er jafnframt tækifæri til að sýna gestum, samstarfsaðilum og öðrum fyrirtækjum hvaða þekking, lausnir, þjónusta og tækifæri eru til staðar á Suðurlandi og stuðla þannig að auknu samstarfi og viðskiptum innan landshlutans.
Skráning á hátíðina fer fram hér: https://uppspretta.sass.is/is/company-registration
Skráningarfrestur er til 20. Október.

