- fundur stjórnar Háskólafélags Suðurlands haldinn 13.08. 2015 í Fjölheimum.
Mættir eftirtaldir stjórnarmenn: Dagný Magnúsdóttir, Helga Þorbergsdóttir, Kristín Hermannsdóttir í fjarsambandi, Olga Lísa Garðarsdóttir, Rögnvaldur Ólafsson, Sigurður Þór Sigurðsson og Sveinn Aðalsteinsson. Einnig sat Sigurður Sigursveinsson framkvæmdastjóri HfSu fundinn. Helga Þorbergsdóttir ritaði fundargerð.
- Fundargerð 54. fundar lögð fram, samþykkt og undirrituð.
- Stjórn HfSu skipti með sér verkum svo sem samþykktir félagsins kveða á um. Sveinn Aðalsteinsson kjörinn formaður, Kristín Hermannsdóttir varaformaður og Helga Þorbergsdóttir ritari.
- Framkvæmdastjóri fór yfir starfsemi á vegum félagsins frá síðasta stjórnarfundi í maí.
Í því yfirliti kom m.a. fram:
- Árleg námskynning Háskólafélagsins fór fram í Fjölheimum þann 19. maí sl. Töluverður fjöldi lagði leið sína á kynninguna og fulltrúar frá Háskólanum á Akureyri, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskólanum á Bifröst og Keili mættu á staðinn. Kynningarefni frá öðrum háskólum lá frammi.
- Aðalfundur félagsins var haldinn 20. maí í Fjölheimum á Selfossi. Tveir stjórnarmanna gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu, Steingerður Hreinsdóttir og Örlygur Karlsson. Steingerður hafði verið formaður stjórnar frá upphafi og Örlygur lengst af varaformaður.
- 532 próftökur voru skráðar hjá félaginu á nýliðinni vorönn, þar af 453 á Selfossi, 53 á Höfn, 22 í Vík og 4 á Kirkjubæjarklaustri.
- Átta manna hópur, þar af tveir starfsmenn Háskólafélagsins, fóru í vinnuferð til Portúgal 26. maí til 1. júní varðandi Erasmus+ verkefnið um Geo education. Skipuleggjandinn í Portúgal, ADRIMAG, er að mörgu leyti hliðstætt Háskólafélaginu og var fróðlegt af heyra af starfsemi þess.
- Mánudaginn 22. júní stóð félagið fyrir eins konar háskólahátíð í Tryggvagarði á Selfossi þar sem samfagnað var með þeim háskólanemum sem brautskráðust frá skólum sínum nú í vor en hafa notið þjónustu félagsins. Á annan tug kandídata mættu með fjölskyldum sínum og sérstakur gestur samkomunnar var Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri. Það var bundið fastmælum að næsta vor gætu nemendur skólans valið það að brautskrást formlega á Selfossi í stað þess að fara norður.
- Félagið tók á móti 16 manna hóp samstarfsaðila í Ersamus+ verkefninu frá Króatíu, Portúgal og Póllandi 24.-29. júní. Haldinn var vinnufundur í Fjölheimum fimmtudaginn 25. júní. Hópurinn ferðaðist víðsvegar um Suðurland og fékk fræðslu og frábærar móttökur hvar sem komið var.
- 1. júlí sl. áttu Sigurður Sigursveinsson og Sveinn Aðalsteinsson fund með Þórarni Sólmundarsyni og Ásdísi Jónsdóttur í menntamálaráðuneyti um endurnýjun samnings milli Háskólafélagsins og ráðuneytisins.
- Nú í sumar var komið að því að endurnýja vottun Kötlu jarðvangs til veru í Global Geoparks Network. Þetta ferli er umfangsmikið, felur í sér ítarlega skýrslugerð og mat, og síðan að taka á móti tveimur úttektaraðilum erlendis frá. Framkvæmdastjóri HfSu hefur tekið virkan þátt í þessari vinnu.
4. Rætt um starfið framundan. Nýkjörnum formanni og framkvæmdastjóra falið að ræða við forsvarsmenn SASS um samstarf og samþættingu á sviði menntamála, atvinnulífs og samfélags.Samþykkt að Háskólafélagið greiði ferð Sigurðar Sigursveinssonar á báða fundi European Geoparks Network 2016.
Næsti fundur stjórnar ákveðinn 21. september kl 14 í Fjölheimum.
Framkvæmdastjóri lagði fram tillögu að tilhögun verkefna hjá starfsmönnum félagsins á Selfossi á komandi haustönn. Fastir starfsmenn eru auk framkvæmdastjóra Hrafnkell Guðnason og Ingunn Jónsdóttir verkefnastjórar auk Nínu Sibyl Birgisdóttur á Höfn.. Tillaga Sigurðar samþykkt.
Samþykkt að Háskólafélagið greiði ferð Sigurðar Sigursveinssonar á báða fundi European Geoparks Network 2016.
Næsti fundur stjórnar ákveðinn 21. september kl 14 í Fjölheimum.