56. fundur stjórnar Háskólafélags Suðurlands haldinn 14.10. 2015 á Kirkjubæjarklaustri.
Mættir eftirtaldir stjórnarmenn: Dagný Magnúsdóttir, Helga Þorbergsdóttir, Kristín Hermannsdóttir, Olga Lísa Garðarsdóttir í símasambandi, Rögnvaldur Ólafsson, Sigurður Þór Sigurðsson og Sveinn Aðalsteinsson. Einnig sat Sigurður Sigursveinsson framkvæmdastjóri HfSu fundinn. Helga Þorbergsdóttir ritaði fundargerð.
- Fundargerð 55. fundar lögð fram, samþykkt og undirrituð.
- Rekstrarhorfur 2016 og áherslur í starfi félagsins. Miklar umræður urðu um rekstur og mannahald í Skaftafellssýslum. Meðal annars kom þar fram að ekki hefur tekist að fjármagna verkefnið Efling menntunar í V-Skaftafellssýslu á yfirstandandi ári. Mikil nýting hefur verið á námsaðstöðu í Vík.Það er og verður sameiginlegt verkefni stjórna Fræðslunets, Háskólafélags og Nýheima að efla, þróa og styrkja fjarnám og kennsluaðstöðu á starfssvæði félaganna eftir því sem við á. Umræður urðu um námskosti fólks, 25 ára og eldri, sem ekki fær lengur inni í framhaldsskólum og mögulegar leiðir í því sambandi.
- Árið 2014 kom 10 milljóna króna tímabundið framlag frá ríkinu inn á okkar starfssvæði. Það er nauðsynlegt fyrir starfsemina í Saftafellssýslum að þetta framlag verði varanlegt, ella er hætta á að það fjari undan því uppbyggingarstarfi sem unnið hefur verið á undanförnum árum s.s. í Vík og á Kirkjubæjarklaustri. Það er skoðun stjórnarmanna HfSu að það halli á Sunnlendinga í fjárframlögum til fræðslustarfsemi varðandi framhaldsfræðslu og háskólaþjónustu.
- Sameiginlegur starfsmaður Fræðslunetsins og Háskólafélagsins á Höfn hefur sagt upp störfum frá og með næstu áramótum.
- Þess er vænst að Geo education verkefnið skili nokkurri framlegð inn í rekstur félagsins, þá er gert ráð fyrir að lokagreiðsla vegna þolprófs íslenska hestsins skili sér á næsta ári. 16,4 milljóna framlag er til félagsins á fjárlögum. Ekkert liggur fyrir um framlag frá Sóknaráætlun Suðurlands. Það er forgangsmál að traustum fjárhagslegum grunni verði skotið undir alla starfsemi félagsins og þá ekki síst þekkingarsetur og fræðslustarfsemi á mið- og austursvæði félagsins. Miðað við þær forsendur sem nú liggja fyrir er ljóst að hallarekstur verður á félaginu og að áfram verður gengið á eigið fé.
- Ingunn Jónsdóttir ræddi möguleg ný verkefni í tengslum við Erasmus + og/eða sambærilega sjóði. Hugmyndir settar fram og samþykkt að þróa þær og vinna áfram að málinu.
- Á fundi í menntamálaráðuneytinu þann 12.10 2015 var undirritaður nýr þriggja ára samningur (2015-2017). Á þeim fundi kom fram af hálfu ráðuneytismanna að til greina komi að ráðuneytið hafi frumkvæði að nefndarstarfi sem skoði fyrirkomulag þekkingarstarfsemi á Suðurlandi.
- Önnur mál. Rætt um mál tengd Kötlu jarðvangi og rifjað upp að í bréfi Háskólafélagsins og Fræðslunetsins til ráðherra mennta- og byggðamála sagði m.a: Stofnað verði þekkingarsetur í Vík og á Kirkjubæjarklaustri með jarðfræði sem áherslusvið í samstarfi við Kötlu jarðvang. Enn hefur ekki náðst fundur með ráðherrunum til að fylgja þessum hugmyndum úr hlaði. Eftir úttekt í sumar fékk jarðvangurinn vottun til tveggja ára í stað fjögurra áður.
- Næsti fundur ákveðinn í Fjölheimum þann 30.11. nk. kl 11:30.