Skip to content Skip to footer

83. fundur

83. fundur stjórnar Háskólafélags Suðurlands, haldinn í fjarfundi þann 22.06.2021.

Viðtöl við umsækjendur um stöðu framkvæmdastjóra HfSu.

Fundinn sátu eftirtaldir stjórnarmenn: Helga Þorbergsdóttir, Kristín Hermannsdóttir, Rögnvaldur Ólafsson og Sveinn Aðalsteinsson.

Helga Þorbergsdóttir ritaði fundargerð.

Fimm umsóknir bárust um stöðu framkvæmdastjóra HfSu, einn umsækjandi dró umsókn til baka og fjórir því boðaðir í viðtöl sem fóru fram í fjarfundi.

Eftir viðtölin voru tveir umsækjendur metnir hæfastir. Samþykkt að fara í frekari úrvinnslu í samvinnu við þá og þeim falið að útbúa og flytja kynningu á því hvernig þeir vildu styrkja, stækka og efla HfSu næstu 3 árin. Einnig kynna sína framtíðarsýn á stöðu félagsins eftir 3 ár.  Gera skyldi grein fyrir fjármögnunarleiðum og verkþáttum með áherslu á menntun, rannsóknir og nýsköpun. Umsækjendur fengu sólarhring til að vinna verkefnið.