89.
fundur Háskólafélags Suðurlands, haldinn þann 27.10.2022 í Bankahúsinu
Selfossi.
Fundinn
sátu eftirtaldir stjórnarmenn:
Helga
Þorbergsdóttir, Olga Lísa Garðarsdóttir, Sigurður Markússon, Sigurður Þór
Sigurðsson, Sveinn Aðalsteinsson og Sæunn Stefánsdóttir, Hugrún Harpa
Reynisdóttir boðaði forföll.. Einnig sátu fundinn; Ingunn Jónsdóttir
framkvæmdastjóri ásamt Brynju Hjálmtýsdóttur,
Guðlaugu Svansóttur og Ingibjörgu Ástu Rúnarsdóttur starfsmönnum
félagsins.
Helga Þorbergsdóttir ritaði fundargerð.
Ingunn gerði grein fyrir starfsemi
félagsins undanfarna mánuði:
· Heimasíða félagsins hefur verið uppfærð.
· Þuríður Ingvarsdóttir hefur verið ráðin að Fablab-inu í 25% starfshlutfalli
· Frumkvöðlar og fleira fólk hefur hist mánaðarlega á vegum Hreiðursins og fjallað um frumkvöðlastarfsemi frá ýmsum hliðum.
· Styrkur var veittur úr Lóu frumkvöðlasetri í sóknarfæri í nýsköpun/Sunnanátt. Kynningarfundur áætlaður um miðjan nóvember.
· Verkefnið Menntahvöt hefur haft það markmið að hækka menntunarstig á Suðurlandi um 25%. Leitað hefur verið eftir viðhorfum ungs fólks á Suðurlandi og er skýr vilji til uppbyggingar háskólaumhverfis í fjórðungnum.
· Leigusamningur HfSu við Árborg rennur út um n.k. áramót. Samningurinn verður framlengdur til tveggja ára. Sá tími verður nýttur til að vinna að framtíðarsýn Fjölheima í samstarfi við Fræðslunet Suðurlands og Sveitarfélagið Árborg.
· Í samvinnu við háskólana í landinu er unnið að því að efla háskólanám í Sunnlendingafjórðungi. Þar er m.a. horft til náms í tæknifræðum í samvinnu við HÍ, H.R.og/eða aðra háskóla. Einig var rætt um aðrar námsleiðir m.a. í nýsköpun.
· Ræða þarf við ráðuneytið um uppfærslu á þjónustusamningi um prófaþjónustu, vegna verulega aukins umfangs þess þáttar hjá starfsmönnum Háskólafélagsins.
· Starfsmenn Háskólafélagsins munu áfram sinna atvinnuráðgjöf fyrir SASS og er vinna í gangi við að þróa þá þjónustu.
· Talsverðar umræður urðu um frekari kynningu á Háskólafélagi Suðurlands og möguleg sóknarfæri sem gætu falist í frekari samvinnu/samruna við aðila sem stefna að sama marki.
· Ungmennaráð
Suðurlands kom á fund stjórnar með þeim hætti að sýnt var nýlegt myndband
þeirra hvar meðlimir ráðsins lýstu sinni framtíðarsýn. Góður rómur var gerður
að myndbandinu.