Mánudaginn 26. maí 2014 verður haldinn aðalfundur Háskólafélags Suðurlands – Þekkingarnets á Suðurlandi í Fjölheimum.
Að afloknum aðalfundarstörfum verður hadlið málþing, öllum opið, í stofu 205. Dagskrá þess er sem hér segir:
Málþing Háskólafélagsins kl. 14
IPA verkefnið um Katla Geopark–hvað hefur verið gert og hvað er framundan?
Verkefninu lýkur formlega 25. júní 2014
Framtíðarsýn Rannsóknarmiðstöðvar HÍ á Selfossi í jarðskjálftaverkfræði
Kynnt verða metnaðarfull áform um uppbyggingu meistara- og doktorsnáms í héraðinu
Stefnumörkun og framtíð Háskólafélagsins
Kynntar verða m.a. hugmyndir um uppbyggingu þekkingarsetra í Vík og á Kirkjubæjarklaustri
Gert er ráð fyrir að málþinginu ljúki eigi síðar en kl. 15:30.
Verið velkomin!
Viðbót 27. maí: Lesa má um aðalfundinn og málþingið hér og hér