Skip to content Skip to footer

50. fundur

50. fundur stjórnar Háskólafélags Suðurlands haldinn í Fjölheimum 26. maí 2014 kl. 11-12:30 

 

 

Mætt; Ágúst Sigurðsson, Dagný Magnúsdóttir, Helga Þorbergsdóttir,  Rögnvaldur Ólafsson, Steingerður Hreinsdóttir, Sveinn Aðalsteinsson, Örlygur Karlsson og Sigurður Sigursveinsson framkvæmdastjóri,

Fundargerð ritaði Helga Þorbergsdóttir.

 

  1. Fundargerð 49. fundar samþykkt og undirrituð.
  2. Steingerður Hreinsdóttir tilnefnd af hálfu Háskólafélags Suðurlands í stjórn Þekkingarseturs Nýheima, Höfn í Hornafirði.
  3. Rætt um væntanlegan aðalfund og málþing honum tengt.
  4. Önnur mál
  1. Rögnvaldur Ólafsson gerði grein fyrir niðurstöðum stjórnarfundar Kötlu Geopark þann 23.05. sl. Þar var rætt um mikilvægi þess að ekki kæmi hlé í starfsemi á vegum jarðvangsins nú þegar þáttaskil verða við lok IPA verkefnisins. Ákveðið að ráða starfsmenn í þrjá mannmánuði til loka október. Þessi tími verði m.a. notaður til að sinna fyrirliggjandi verkefnum og áhersla lögð á að auka tengsl við skólahópa. Núverandi starfsmenn jarðvangsins munu sinna þessum verkefnum. Ársfundur jarðvangsins verður haldinn í október og þar lagðar fram tillögur að framtíðar fyrirkomulagi á rekstrarformi Kötlu Geopark.
  2. Stjórn HfSu samþykkir að Steingerður Hreinsdóttir fráfarandi rekstrarstjóri Kötlu jarðvangs og Sigurður Sigursveinsson framkvæmdastjóri HfSu leggi fram nauðsynlega vinnu við lokauppgjör IPA verkefnisins.
  3. Samþykktur styrkur til Kötlu Geoparks í því formi að HfSu greiði för Sigurðar Sigursveinssonar á félagsfundi samtaka jarðvanga í mars og september árið 2015.
  4. Ákveðið að halda næsta stjórnarfund á Kirkjubæjarklaustri þann 12. september nk. kl 12. Aðalefni fundarins verði umræða um stefnumótun.