98. fundur stjórnar Háskólafélags Suðurlands, haldinn 22. ágúst í Fjölheimum á Selfossi, stað-og fjarfundur.
Fundargerð ritaði Helga Þorbergsdóttir.
Mætt voru: Helga Þorbergsdóttir, Hugrún Harpa Reynisdóttir, Sigurður Markússon, Sigurður Þór Sigurðarson, Soffía Sveinsdóttir, Sveinn Aðalsteinsson og Sæunn Stefánsdóttir. Einnig sat Ingveldur Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins, sinn fyrsta stjórnarfund.
Sveinn bauð fundarmenn velkomna og bauð Ingveldi Sæmundsdóttur sérstaklega velkomna til starfa sem framkvæmdastjóra félagsins.
Framtíðarsýn og hlutverk
Rætt var um framtíðarsýn og hlutverk Háskólafélagsins, verkefnasögu þess og lykilverkefni.
Sveinn fór yfir markmið HfSu með áherslu á aukið framboð á háskólanámi á Suðurlandi. Í því sambandi vísaði hann til uppbyggingar University of the Highlands and Islands í Skotlandi. Þá fór hann yfir áhuga Háskólafélagsins á samstarfi við stofnanir á Suðurlandi á þessu sviði.
Einnig fjallaði Sveinn um háskólaútibú sem starfrækt eru víða á Norðurlöndum og nefndi sérstaklega Seinäjoki í Finnlandi og Svalbarða. Í því samhengi var velt upp þeirri hugmynd hvort stefna bæri að háskólaútibúi á Suðurlandi þar sem áhersla yrði lögð á verkefni tengd landshlutanum.
Ingveldur fór yfir framtíðarsýn HfSu og möguleika til að efla Suðurland sem þekkingar- og nýsköpunarsamfélag. Fram kom að eitt af lykilhlutverkum Háskólafélagsins væri að vera tengiliður háskóla inn á Suðurland.
Rætt var um mikilvægi þess að aðgengi að námi, nýjar og sveigjanlegar námsleiðir, svo sem örnám og endur- og símenntun, taki mið af þörfum atvinnulífs og framtíðarsýn samfélaga á Suðurlandi.
Góðar umræður urðu meðal stjórnarmanna í kjölfar kynningar Sveins og Ingveldar, meðal annars um nýsköpunarstefnu og þróun hennar.
Ingveldur fór jafnframt yfir stöðu og stefnu verkefna HfSu. Þar var meðal annars fjallað um stefnumótun, nýsköpun og nýsköpunarsetur, frumkvöðlanámskeið, samstarf við Fab Lab og eflingu samstarfs við háskóla um þróun örnáms, fjarnáms/netnáms og staðarlotna. Einnig var rætt um aukna kynningu á Háskólafélaginu og starfsemi þess.
Þá var rætt um styrkleika og tækifæri Háskólafélagsins sem og veikleika og ógnanir.
