99. fundur Háskólafélags Suðurlands haldinn 11. desember í Fjölheimum Selfossi, stað og fjarfundur.
Fundargerð ritaði Helga Þorbergsdóttir
Mætt: Helga Þorbergsdóttir, Hugrún Harpa Reynisdóttir, Sigurður Markússon, Sigurður Þór Sigurðarson, Soffía Sveinsdóttir, Sveinn Aðalsteinsson og Sæunn Stefánsdóttir. Einnig sat fundinn Ingveldur Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri félagsins.
Starfsáætlun 2026
Ingveldur fór yfir drög að starfsáætlun og verkefnastöðu fyrir árið 2026. Háskólafélagið er með samning við menningar,- nýsköpunar- og háskólaráðuneytið sem felur í sér árleg framlög að upphæð 44 milljónir króna og við SASS með árlegum framlögum um 8 m.kr vegna verkefna byggðaþróunarfulltrúa í neðri hluta Árnessýslu.
Með samningum við stjórnvöld er stefnt að eflingu nýsköpunar, rannsókna og frumkvöðulsstarfs á starfssvæðinu. HfSu skal jafnframt standa fyrir viðburðum tengdum nýsköpun og stuðla að og hvetja til nýsköpunar með verkefnum, fræðslu og viðburðum. Einnig að hvetja atvinnulíf og fyrirtæki á starfssvæðinu til þátttöku í nýsköpunarverkefnum. Markmið hvað háskólanám varðar er að hækka menntunarstig á starfssvæði HfSu með því að bæta aðgengi að háskólanámi og stuðla að fjölbreyttara námsumhverfi á háskólastigi.
Rætt var um nokkur verkefni sem eru á starfsáætlun á nýju ári, þar á meðal að Háskólafélagið leiðir, í samvinnu við hagaðila, vinnu við áhersluverkefni SASS um mótun nýsköpunarstefnu Suðurlands. Leitað verður til RATA um sérfræðiaðstoð á einstökum þáttum verkefnisins. Samstarfsaðilar eru Orkídea, Nýheimar, Þekkingarsetur Vestmannaeyja, Fab lab á Suðurlandi, Ölfus Cluster, Kötluseturog Kirkjubæjarstofa. Einnig verða fulltrúar sveitarfélaga, atvinnugreina og frumkvöðlar kallaðir til samstarfs.
Sótt hefur verið um eina miljón króna í Örvar styrktarsjóð til að fjármagna samstarf við ICEBAN til að virkja aðila til fjárfesta í sunnlenskri nýsköpun á frumstigi. Með samstarfinu kemur þekking sem styður við að hugmyndir þróist og dafni.
Til stendur að halda upplýsinga- og fræðsludag um styrki í febrúar. Áformað er að kalla til ráðgjafa úr styrktarsjóðum ásamt reynsluboltum í styrktarumsóknum.
Háskólafélagið í samvinnu við SASS hefur hafið undirbúning að nýsköpunardegi, áætluð dagsetning er 6. nóvember. Dagurinn verður tileinkaður atvinnulífinu og nýsköpun á Suðurlandi.
Háskólafélagið leiðir verkefni sem snýr að umhverfismálum og sjálfbærni og miðar að því að útbúa leiðbeiningar/verkfærakistu fyrir jaðarsetta fullorðna einstaklinga, gjarnan einstaklinga af erlendu bergi brotin. Samstarfsaðilar eru í Slóveníu og Serbíu.
Þá er unnið að því að kanna hvaða leiðir eru færar til markvissrar samræmingar almenningssamgangna milli helstu kjarna í Árnessýslu. Kortlögð er þörf meðal íbúa og fýsileiki metinn. Verkefnið er unnið með byggðaþróunarfulltrúum í Árnessýslu, Flóahreppi og Vegagerðinni. Könnun verður gerð á nýju leiðakerfi sem tekur gildi 1. jan 2026.
Ýmislegt fleira var rætt í tengslum við starfsáætlunina og eru fleiri verkefni þar á meðal s.s. að kanna möguleika á að þróa og gera þarfagreining á styttri háskólaleiðum sem tengjast kjarna atvinnugreinum á Suðurlandi.
Einnig kom fram að Háskólafélagið hafi sent þrjár ábendingar til SASS um áhersluverkefni í Sóknaráætlun og er niðurstöðu að vænta innan skamms. Hugmyndir af verkefnum eru samstarf við Drift EA um nýsköpun innan starfandi fyrirtækja, þróun örnáms á háskólastigi í samstarfi við Háskólann á Hólum og þarfagreiningu á háskólabrú fyrir innflytjendur á Suðurlandi.
Samþykkt var að Ingveldur muni vinna úr umræðum og stjórnarmenn fái síðan senda endanlega áætlun í lok janúar 2026.
Fjárhagsáætlun 2026
Ingveldur kynnti drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2026. Einstakir liðir ræddir og endanleg áætlun mun liggja fyrir í lok janúar 2026 þegar ljóst verður hvort Háskólafélagið fær umrædd áhersluverkefni í samstarfi við SASS.
Húsnæðismál, Fjölheimar
Háskólafélagið er með húsaleigusamning við sveitarfélagið Árborg um Fjölheima sem rennur út í loks árs 2026. Framkvæmdastjóri Háskólafélagsins hefur séð um rekstur Fjölheima og að framleigja Fjölheima til stofnana og fyrirtækja. Leigusamningur sem er síðan 2013 hefur tvívegis verið framlengt og nú óskað eftir að framlengingu til næstu fjögurra ára.
Önnur þekkingarsetur
Samþykkt að stefna að ferð norður í land til að heimsækja og kynnast starfsemi og húsnæðismálum þekkingarsetra á Húsavík og Drift Akureyri. Ingveldur og Sveinn vinna að skipulagi.
