100. stjórnarfundur Háskólafélags Suðurlands haldinn í Fjölheimum á Selfossi, stað- og fjarfundur.
Fundargerð ritaði Helga Þorbergsdóttir.
Mætt voru: Helga Þorbergsdóttir, Hugrún Harpa Reynisdóttir, Sigurður Markússon, Sigurður Þór Sigurðarson, Soffía Sveinsdóttir, Sveinn Aðalsteinsson og Sæunn Stefánsdóttir. Einnig sat fundinn Ingveldur Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins.
1. Fundargerðir fyrri funda Fundargerðir síðustu tveggja stjórnarfunda voru lagðar fram og formlega samþykktar.
2. Starfsáætlun 2026 og fjárhagsáætlun 2026 Starfsáætlun 2026 og fjárhagsáætlun 2026 voru lagðar fram til samþykktar en gögnin höfðu áður verið send stjórnarmönnum. Áætlanirnar voru ræddar og samþykktar.
3. Drög að ársreikningi 2025 Drög að ársreikningi 2025 voru lögð fram til umræðu og samþykktar. Ársreikningurinn var samþykktur án athugasemda. Endurskoðun ársreiknings verður tilbúin 21. apríl.
4. Drög að skýrslu stjórnar Drög að skýrslu stjórnar, sem lögð verður fram á aðalfundi, voru kynnt. Skýrslan var rædd og samþykkt.
5. Umræður um breytingar á stjórn Sveinn reifaði hvernig kjör til stjórnar á aðalfundi hefur verið háttað og kynnti hugmyndir um hvort skilvirkara og hagkvæmara væri að fækka stjórnarmönnum úr sjö í fimm. Hugmyndir Sveins voru ræddar.
6. Önnur mál Ingveldur ræddi húsnæðismál félagsins, en núverandi samningur rennur út um næstu áramót. Hún upplýsti að erindi hefði verið sent til Árborgar þess efnis að samningur Háskólafélags Suðurlands við sveitarfélagið yrði framlengdur um fjögur ár.
Fundi frestað til 21.apríl kl 11:30
Framhaldsfundur 100. stjórnarfundar Háskólafélags Suðurlands haldinn í fjarfundi.
Mætt voru: Helga Þorbergsdóttir, Hugrún Harpa Reynisdóttir, Sigurður Markússon, Sigurður Þór Sigurðarson, Soffía Sveinsdóttir, Sveinn Aðalsteinsson. Sæunn Stefánsdóttir var fjarverandi. Einnig sat fundinn Ingveldur Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins.
3. Drög að ársreikningi, framhald.
Endurskoðaður ársreikningur er lagður fram og samþykktur formlega með rafrænni undirritun.
5. Umræður um breytingar á stjórn Sveinn lagði fram tillögu um breytingu á samþykktum félagsins þess efnis að á aðalfundi yrði lögð fram tillaga um breytingu á fjölda stjórnarmanna, úr sjö í fimm. Jafnframt yrði lagt til að varastjórn félagsins yrði skipuð fimm einstaklingum, tilnefndum af SASS úr hópi aðalmanna í stjórn SASS. Tillagan var samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl 12:15
