Skip to content Skip to footer

Háskólafélagið á Tonik nýsköpunarráðstefnunni í Færeyjum

Nýsköpunarhátíðin Tonik var haldin í fjórða sinn í hinu glæsilega Sílói í Þórshöfn þann 8. maí. Þar tók ég, Margrét Polly og Ingveldur hjá Háskólafélagi Suðurlands þátt í fyrsta sinn með það að markmiði að sækja innblástur, efla tengslanetið og kynnast því sem er að gerast í fremstu röð nýsköpunar á Norðurlöndum og víðar.
Það sem mætti okkur var langt umfram hefðbundna ráðstefnu; þetta var kraftmikill vettvangur þar sem hugmyndir, framtíðarsýn og hugrekki mættust á einstakan hátt.

Tonik hefur á örfáum árum orðið ein áhugaverðasta nýsköpunarráðstefna Norðurlanda. Þar koma saman frumkvöðlar, leiðtogar, tæknifólk og skapandi einstaklingar alls staðar að úr heiminum til að deila hugmyndum, mynda samstarf og ýta mörkum þess sem mögulegt er. Í ár voru þátttakendur um 700 talsins og nær helmingur þeirra kom erlendis frá. Á þremur mismunandi sviðum fóru fram fyrirlestrar og pallborðsumræður um fjölbreytt málefni tengd nýsköpun, framtíð atvinnulífsins og þeim tækifærum sem felast í litlum samfélögum sem þora að hugsa stórt.

Af 38 fyrirlesurum voru fimm frá Íslandi: Þórey Proppé, Sesselja Barðdal, Ragnheiður Magnúsdóttir, Freyr Friðfinnsson og Anna Laufey Stefánsdóttir. Það sem stóð þó hvað mest upp úr í umræðunum var skýr og endurtekin skilaboð: lítil lönd eiga ekki að hugsa lítið. Þvert á móti. Í heimi þar sem tækniframfarir, alþjóðleg tengsl og samstarf þvert á landamæri eru að verða sífellt aðgengilegri hafa lítil samfélög einstakt tækifæri til að skapa stór áhrif. Hugmyndir sem kvikna á litlum stöðum geta í dag orðið að alþjóðlegum verkefnum ef fólk hefur hugrekki til að segja frá þeim, leita samstarfs og stíga út fyrir þægindarammann.

Það var einnig einstaklega áhrifamikið að sjá hversu sterk samstaðan í Færeyjum er í kringum nýsköpun. Þar voru helstu stjórnmálamenn landsins mættir, ekki aðeins sem gestir heldur sem virkir þátttakendur sem vildu hlusta, tengjast og styðja við fólkið sem er að skapa framtíðina. Slíkur stuðningur sendir skýr skilaboð um að nýsköpun sé ekki hliðarverkefni heldur lykilatriði í uppbyggingu samfélagsins.

Eitt það mest hvetjandi við ferðina var þó að sjá þann öfluga hóp sem kom frá Norðurlandi. Fulltrúar frá SSNE, Drift EA og Hraðinu á Húsavík mættu með sjö nýsköpunarteymi sem tóku þátt í pitch-keppni hátíðarinnar.
Þar varð augljóst hversu markviss uppbygging og stuðningur við nýsköpun á Norðurlandi hefur skilað sterkum árangri. Hugmyndirnar voru metnaðarfullar, teymin öflug og framsetningin framúrskarandi. Þetta var ekki bara þátttaka heldur einnig skýr sýn á hvað er hægt að byggja upp þegar samfélög ákveða að fjárfesta í fólkinu sínu og hugmyndunum þeirra.

Sem verkefnastjóra nýsköpunar á Suðurlandi fyllti þessi upplifun mig bæði stolti, innblæstri og framtíðarvon. Hún sýndi mér hvað er mögulegt þegar samfélög vinna saman af metnaði og trú á eigin getu. Nú er markmiðið skýrt: að byggja upp jafn sterkt og kraftmikið nýsköpunarumhverfi á Suðurlandi – og mæta á Tonik á næstu árum með sjö sunnlensk nýsköpunarteymi tilbúin til að kynna hugmyndir sínar á alþjóðlegum vettvangi.

Skipuleggjendur Tonik