Fundargerð 18. aðalfundar Háskólafélags Suðurlands, mánudaginn 4. maí kl. 13 í Fjölheimum á Selfossi og fjarfundi.
Ingveldur Sæmundsdóttir setti fundinn og staðfesti lögmæti fundarins þar sem 79,1% fulltrúa hlutafjár voru mættir. Leggur hún jafnframt til að Sigurður Þór Sigurðsson verði fundarstjóri og að Helga Kristín Sæbjörnsdóttir riti fundargerð. Samþykkt samhljóða og gengið til dagskrár.
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina á liðnu ári. Ingveldur gerði grein fyrir ársskýrslu, fór yfir nýjar áherslur og starfsemi ársins 2025. Jafnframt kynnti hún þau verkefni sem hófust á árinu 2025, Evrópuverkefni og mótun nýsköpunarstefnu Suðurlands ásamt nemenda- og prófaþjónustu. Auk þess tilkynnti hún um endurnýjaðan leigusamning við Árborg til næstu fjögurra ára sem sé undirritaður. Hægt er að lesa skýrsluna með því að smella hér.
Sveinn Aðalsteinsson formaður stjórnar fór yfir skýrslu stjórnar.
Framkvæmdastjóraskipti urðu á árinu þar sem Ingunn Jónsdóttir fór til annarra starfa og Ingveldur Sæmundsdóttir tók við Háskólafélaginu. Með nýjum framkvæmdastjóra var farið í stefnumótun félagsins og undirbúningur að mótun nýsköpunarstefnu Suðurlands hófst en verkefnið er styrkt af SASS gegnum Sóknaráætlun landshluta.
2. Ársreikningar félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda. Arnar Leó Guðnason og Lilja Dögg Karlsdóttir hjá KPMG endurskoðuðu ársreikning 2025. Arnar Leó fór yfir ársreikninginn á fundinum. Ársreikningurinn gefur glögga mynd og í samræmi við lög um ársreikninga. Rekstrarniðurstaða ársins var jákvæð og var félagið rekið með hóflegum afgangi. Hægt er að skoða ársreikninginn með því að smella hér.
Ársreikningur borinn upp til samþykktar. Samþykktur samhljóða.
3. Ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap og framlög í varasjóð. Óheimilt að greiða út arð samkvæmt samþykktum félagsins frá aðalfundi 2025. Í samræmi við grein 2.7 er félaginu óheimilt að greiða út arð til hluthafa heldur er öllum umfram hagnaði varið til verkefna sem teljast í þágu almannheilla.
4. Ákvörðun skal tekin um þóknun til stjórnarmanna fyrir störf þeirra á starfsárinu. Tillaga um óbreytt fyrirkomulag um þóknun stjórnarmanna fyrir hvern fund er 3% til almennra stjórnarmanna og 4% til stjórnarformanns sem fylgir viðmiðum SASS um laun vegna stjórnarsetu. Samþykkt samhljóða.
5. Breytingar á samþykktum. Lögð var fram tillaga stjórnar um breytingu á samþykktum félagsins grein 4.1. þess efnis að stjórn félagsins verði skipuð fimm einstaklingum í stað sjö og varastjórn jafnframt fimm einstaklingum sem eru tilnefndir af SASS.
Stjórn félagsins skal skipuð fimm einstaklingum, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Varastjórn félagsins skal jafnframt skipuð fimm einstaklingum, tilnefndum af SASS, úr hópi þeirra er sitja í aðalstjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga/SASS á hverjum tíma. Stjórn félagsins stýrir öllum málefnum félagsins milli hluthafafunda og gætir hagsmuna þess gagnvart þriðja manni. Undirskrift meirihluta stjórnarmanna skuldbindur félagið. Stjórnarfundir eru lögmætir ef meirihluti stjórnarmanna sækir fund. Afl atkvæða ræður afgreiðslu mála. Verði atkvæði jöfn skal máli skotið til hluthafafundar. Halda skal fundargerð um stjórnarfundi.
Tillagan var samþykkt samhljóða.
6. Stjórn félagsins skal kjörin og endurskoðandi. Lagt var til að eftirtaldir einstaklingar verði kjörnir í stjórn Háskólafélags Suðurlands: Helga Þorbergsdóttir, Hugrún Harpa Reynisdóttir, Sæunn Stefánsdóttir, Soffía Sveinsdóttir og Guðmundur Ármann Pétursson kemur nýr inn.
Lagt er til að eftirtaldir verði í varastjórn félagsins, sem hafa verið tilnefndir af SASS: Anton Kári Halldórsson formaður, Arnar Freyr Ólafsson, Árni Eiríksson, Brynhildur Jónsdóttir og Sandra Sigurðardóttir.
Tillögurnar samþykktar samhljóða.
Jafnframt var lagt til að KPMG yrði endurskoðandi félagsins.
Samþykkt samhljóða.
7. Önnur mál. Helga Þorbergsdóttir þakkar fráfarandi stjórnarmönnum, Sveini Aðalsteinssyni sem stofnaði Háskólafélag Suðurlands og lagði línurnar sem enn er unnið eftir, Sigurði Þór Sigurðssyni og Sigurði Hafsteini Markússyni fyrir þeirra framlag til Háskólafélags í gegnum árin og fór yfir sögu þeirra frá stofnun félagsins.
Margrét Polly Hansen, verkefnastjóri nýsköpunar kynnti englafjárfesta og samstarf við þá. Sagði frá Pitch viðburði sem haldinn verður á Sviðinu á Selfossi 21. maí og hvatti fundargesti
til að mæta. Helga Kristín Sæbjörnsdóttir, verkefnastjóri kynnti Erasmus verkefni sem nú er í gangi sem og könnun á almenningssamgöngum sem nú stendur yfir.
Sveinn Aðalsteinsson fráfarandi formaður stjórnar þakkaði fyrir samstarfið við þá fjölmörgu einstaklinga sem hann hefur unnið með. Sveinn rakti í stuttu máli forsögu Háskólafélagsins sem nær aftur til ársins 2006. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga ákváðu á sínum tíma að hefja undirbúning að háskólatengdri starfsemi á Suðurlandi með tilkomu hlutafjárs úr Atvinnuþróunarsjóði Suðurlands, sem var lagður niður um þetta leyti. Sveinn kom inn á að upphaflega lagði HfSu til að Landbúnaðarháskólinn á Reykjum í Ölfusi, rannsóknarsetur HÍ, Jarðskjálftamiðstöð HÍ á Selfossi, Landgræðslan og Íþróttakennaraháskólinn að Laugarvatni mynduðu mennta- og rannsóknaklasasamstarf sem legði grunn að uppbyggingu Háskólafélagsins. Ekki hefur orðið úr þessu samstarfi en HfSu hefur átt samstarf við þessa aðila, mismikið, síðan 2007 en félagið haldið áfram með að vinna að staðarnámi á háskólastigi í þéttu samstarfi við atvinnulífið. Stefna félagsins hefur frá upphafi verið að efla búsetugæði á Suðurlandi og það er ánægjulegt að enn í dag sé félagið á þeirri braut. Sveinn býður upp á samvinnukrafta sína þrátt fyrir að vera að yfirgefa stjórn félagsins. Sigurður Þór Sigurðsson þakkar einnig fyrir samstarfið.
Aðalfundi slitið kl. 13:49.
Mættir fyrir hönd eigenda voru fulltrúar Ásahrepps, Bláskógabyggðar, Flóahrepps, Hrunamannahrepps, Hveragerðisbæjar, Mýrdalshrepps, Rangárþings ytra og Rangárþings eystra, Skaftárhrepps, Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Sveitarfélagsins Árborgar og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga.
Á fundinum sátu fyrir hönd stjórnar Sveinn Aðalsteinsson, Helga Þorbergsdóttir, Sigurður Þór Sigurðsson, Soffía Sveinsdóttir, Hugrún Harpa Reynisdóttir, Sæunn Stefánsdóttir og nýkjörinn stjórnarmaður Guðmundur Ármann Pétursson. Fyrir hönd endurskoðenda mættu Lilja Dögg Karlsdóttir og Arnar Leó Guðnason frá KPMG. Fyrir hönd Háskólafélagsins mættu Ingveldur Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri HfSu, Magnús St. Magnússon forstöðumaður FabLab, Margrét Polly Hansen verkefnastjóri nýsköpunar og Helga Kristín Sæbjörnsdóttir verkefnastjóri sem jafnframt ritaði fundargerð.
