Skip to content Skip to footer

Leigusamningi Háskólafélags Suðurlands og Árborgar framlengt til ársloka 2030

Á dögunum var undirritaður nýr viðauki við leigusamning milli Háskólafélags Suðurlands og Sveitarfélagsins Árborgar um húsnæði Sandvíkurseturs, einnig þekkt sem Fjölheimar. Samningurinn gildir nú til ársloka 2030 og er þetta í þriðja sinn sem honum er framlengt. Ingveldur Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Háskólafélagsins og Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar, undirrituðu samninginn fyrir hönd sinna aðila.

Með framlengingunni eru tryggð áframhaldandi starfsskilyrði fyrir fjölbreytta þekkingarstarfsemi í hjarta Selfoss. Háskólafélag Suðurlands hefur haft starfsemi í húsnæðinu frá árinu 2012. Meðal helstu notenda Fjölheima eru Fræðslunet Suðurlands og Birta starfsendurhæfing, auk Háskólafélagsins sjálfs. Þar starfa einnig fjölmörg önnur fyrirtæki, einstaklingar og stofnanir, þar á meðal Markaðsstofa Suðurlands, Lausnin fjölskyldumiðstöð, Sjálfsmildi, Auðnast, Domus mentis, Bergrisinn, Huglind, Fornleifastofnun Íslands og Háskóli Íslands.

Frá upphafi hefur markmið starfseminnar í Fjölheimum verið að byggja upp öflugt þekkingarumhverfi á Suðurlandi þar sem nám, endurmenntun, starfsþróun, endurhæfing og nýsköpun fara saman.

Ástæða framlengingar samningsins er fyrirhuguð vinna við mótun framtíðarsýnar fyrir húsnæðið. Samningsaðilar eru sammála um að vinna saman að greiningu og útfærslu framtíðarmöguleika Fjölheima, með það að markmiði að efla starfsemi enn frekar í þágu samfélagsins.