Leiðarvísir að sjálfbærum lífsstíl
Roadmap to Sustainable Living – samstarfsverkefni í fullorðinsfræðslu
Verkefnið "Leiðarvísir að sjálfbærum lífsstíl" eða Roadmap to sustainable Living er 18 mánaða samstarfsverkefni Erasmus+ í fullorðinsfræðslu og hófst með formlegum hætti þann 1. september 2025.
Háskólafélag Suðurlands stýrir verkefninu í samstarfi við Inštitut Središče zagovorništva í Sóveníu og Jedi Movement í Serbíu. Áhersla verkefnisins er á umhverfismál, sjálfbærni og inngildingu þar sem markmiðið er að fræða fólk um hvaða leiðir er hægt að fara í umhverfisvænni lífsstíl. Á sama tíma viljum við með þessu verkefni hvetja fólk af erlendum uppruna til þess að kynna sér sjálfbærni og hvaða lausnir eru til staðar til þess að spara bæði auðlindirnar okkar og peninga.
Fyrsta afurð verkefnisins er leiðarvísir (Roadmap to Sustainable Actions) sem er frábært mælitæki og leiðbeinandi skjal fyrir þá sem vilja gera betur, eða fræða aðra um kosti þess að tileinka sér sjálfbærari venjur. Auk þess fylgir safn fyrirmyndar lausna sem við hvetjum alla til að skoða. Hér má nálgast leiðarvísinn á íslensku, ensku, serbnesku og slóvensku.
Fyrstu skrefin!
Leiðarvísirinn er leiðbeinandi skjal og er alls ekki ætlast til fullkomnunar.
Það er mikið efni í leiðarvísinum og við mælum með því að þú flettir fyrst yfir síðurnar og stoppir þar sem áhugi kviknar. Það þarf alls ekki að lesa staf fyrir staf. Prófaðu eftirfarandi:
- Byrjaðu á því að skoða myndirnar, box og það sem er feitleitrað.
- Skoðaðu tölfurnar og prófaðu að reikna út hvar þú stendur.
- Kíktu á verkefnin og hvaða leiðir hægt er að fara.
- Veldu þér verkefni sem þú telur þig eiga auðveldast með að framkvæma. Þú getur svo alltaf bætt við þig erfiðleikastigi.
- Aðlagaðu hvert þema eftir þinni getu og njóttu ferilsins.
Hvernig fer ég að?


Öll sem hafa áhuga á því að tileinka sér sjálfbærari lífshætti óháð getu og þekkingu. Allir geta lagt sitt af mörkum án þess að breyta miklu í daglegum venjum. Leiðarvísirinn hentar einstaklingum, heimilum fræðsluaðilum, sveitarfélögum, stofnunum og einkaaðilum. Hver og einn sem vinnur með efnið mótar það og aðlagar þeim aðstæðum og þeim markhópum sem unnið er í hverju sinni.
Allt efni sem tengist leiðarvísinum er frítt. Við mælum með að vista það í tölvunni svo auðveldara sé að nálgast upplýsingar. Það má auðvitað prenta úr eftir þörfum en við mælum þó með því að reyna að gera sem minnst af því umhverfisins vegna.
Öll sem hefja vegferð sína gera það án skuldbindingar og gefa einungis af sér þann tíma sem er rými fyrir í þeirra dagskrá. Við leggjum ríka áherslu á það að hvert skref til hins betra séu framfarir. Þetta er ekki spurning um fullkomnun, heldur einungis um að gera aðeins betur en áður.
Við viljum ítreka að allt efnið í þessum leiðarvísi er „lifandi“ og getur breyst með nýjum upplýsingum, rannsóknum eða vitneskju. Við reynum að halda því við eftir bestu getu, en ef þú hefur einhverjar hugmyndir eða ábendingar sem gætu komið að gagni viljum við endilega frétta af því.
Best er að gera það með því að senda tölvupóst á helga@hfsu.is eða hfsu@hfsu.is.
