Starfsmenn Háskólafélags Suðurlands tóku þátt í vinnufundi Erasmus+ verkefnisins Roadmap to Sustainable Living í Ljubljana í Slóveníu dagana 5.-6. ágúst. Á fundinum komu saman samstarfsaðilar verkefnisins frá Íslandi, Slóveníu og Serbíu til að vinna að næstu skrefum verkefnisins og þeim afurðum sem nú eru í þróun.Markmið verkefnisins er að valdefla fólk í sjálfbærni hugsun, sérstaklega þá sem hafa færri tækifæri t.a.m vegna tungumálaörðugleika, búsetu sinnar eða þjóðfélagsstöðu.
Tvær afurðir eru nú í vinnslu. Annars vegar „Roadmap to Sustainable Actions“ , leiðarvísir að sjálfbærum lífsstíl og hins vegar „The daily Sustainable Journal“, dagbók sem ætlað er að styðja notendur við að prófa og festa í sessi sjálfbærari venjur í daglegu lífi.
Á vinnufundinum í Ljubljana var meðal annars farið yfir efni, uppbyggingu og hönnun dagbókarinnar og fundað með grafískum hönnuði sem vinnur að endanlegri framsetningu hennar. Þegar dagbókin verður fullunnin og tilbúin til útgáfu verður hægt að nálgast hana, án endurgjalds, á fjórum tungumálum, íslensku, ensku, serbnesku og slóvensku. Dagbókin verður birt á vef Háskólafélags Suðurlands, www.hfsu.is

Verkefninu fer senn að ljúka en tíminn líður afskaplega hratt þegar það er gaman og gengur vel. Í október verður næsti stóri áfangi þegar haldnar verða tvær vinnustofu. Í fyrri vinnustofunni fær afmarkaður hópur einstaklinga fræðslu um sjálfbærni og þær leiðir sem hægt er að fara, til að taka upplýstari skref. Í þeirri seinni sem verður opin öllum, gefst þátttakendum færi á að læra handtökin, stoppa í sokka, undirbúa sáningu fyrir næsta sumar og endurnýta fatnað og hluti.
Fylgið okkur endilega á Facebook

Frá því að verkefnið hófst höfum við lagt ríka áherslu á það að ferðast með eins umhverfisvænum hætti og hægt er. Það kom því skemmtilega á óvart þegar í ljós kom að rútuferðin heim frá Keflavík var á 100% rafmagni.

