Opnað fyrir umsóknir í Vísinda- og rannsóknarsjóð Suðurlands.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Vísinda- og rannsóknarsjóði Suðurlands. Sjóðurinn styrkir háskólanema sem vinna að lokaprófsverkefnum og rannsóknum sem tengjast Suðurlandi með skýrum hætti. Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar 2027 og munu niðurstöður úthlutunar liggja fyrir eigi síðar en 15. febrúar.

Markmið sjóðsins er að styðja rannsóknir sem efla þekkingu á Suðurlandi og geta nýst samfélagi og atvinnulífi landshlutans. Sérstaklega er horft til þess hvort rannsóknir geti skapað grundvöll fyrir frekari rannsóknum, nýsköpun, atvinnuþróun og verðmætasköpun og þannig stuðlað að auknum búsetugæðum og hagsmunum Sunnlendinga.

Rannsóknarverkefni þurfa að vera lokaverkefni til BA-/BS-gráðu eða sambærilegrar eða hærri gráðu og mega ekki vera lokið þegar umsóknarfrestur rennur út. Verkefnið þarf að tengjast Suðurlandi með ótvíræðum hætti og þjóna atvinnulegum og/eða fræðilegum tilgangi fyrir landshlutann eða hluta hans.

Á síðasta ári bárust 16 umsóknir í sjóðinn og tveimur verkefnum var úthlutað samtals tveimur milljónum króna. Þorbjörg Anna Gísladóttir, meistaranemi við Háskóla Íslands, hlaut styrk vegna rannsókna á gossögu og uppruna bergs í Heklu og Vatnafjöllum. Piia Tomingas, doktorsnemi við Landbúnaðarháskóla Íslands, hlaut styrk vegna rannsókna á áhrifum endurheimtar votlendis og rykákomu á lífríki votlendis á Suðurlandi.

Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands hefur styrkt fjölbreytt rannsóknarverkefni frá árinu 2002, meðal annars á sviði náttúru og umhverfis, samfélagsmála, ferðaþjónustu, menntunar og atvinnulífs.