Hugmyndir að rannsóknarverkefnum á Suðurlandi óskast

Háskólafélag Suðurlands leitar nú til fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga eftir hugmyndum að viðfangsefnum, áskorunum eða tækifærum sem gætu orðið að lokaverkefnum háskólanema.

Markmiðið er að tengja betur saman þekkingu háskólanna og raunveruleg viðfangsefni á Suðurlandi. Hugmyndir þurfa ekki að vera fullmótaðar rannsóknarspurningar. Það nægir að benda á viðfangsefni sem væri áhugavert eða mikilvægt að rannsaka. Háskólafélagið mun síðan leita til háskóla og nemenda og kanna hvort áhugi sé á að þróa hugmyndina áfram sem lokaverkefni.

Viðfangsefnin geta verið af fjölbreyttum toga og tengst meðal annars atvinnulífi, nýsköpun, byggðarþróun, menntun, umhverfi, skipulagi  eða öðrum málum sem skipta Suðurland máli.

Með þessu vill Háskólafélagið hvetja fleiri nemendur til að beina sjónum að Suðurlandi í lokaverkefnum sínum og nýta fræðilega þekkingu til að varpa ljósi á raunverulegar áskoranir og tækifæri í landshlutanum.

Nemendur sem vinna að lokaverkefnum með skýra tengingu við Suðurland geta jafnframt sótt um styrk úr Vísinda- og rannsóknarsjóði Suðurlands, opið er fyrir umsóknir til 1.feb 2027.

Nánari upplýsingar á www.hfsu.is