Skip to content Skip to footer

Undirritun samnings

9. desember 2011 var undirritaður þriggja ára samningur milli mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Háskólafélags Suðurlands um starfrækslu þekkingarnets á Suðurlandi.  Meiri áhersla er nú lögð á það en áður að gera formlega samninga um þau margvíslegu verkefni sem njóta styrks á fjárlögum ríkisins.  Nýja samninginn má sjá hér .

undirritun_katrin_sigurdur

Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Sigursveinsson skrifa undir samninginn

 

undirritun_allir

Við sama tækifæri voru undirritaðir samningar við Háskólasetur Vestfjarða og Þekkingarsetur Vestmannaeyja.  Auk Katrínar og Sigurðar eru á myndinni þau Steingerður Hreinsdóttir formaður stjórnar Háskólafélags Suðurlands, Halldór Halldórsson formaður stjórnar Háskólaseturs Vestfjarða og Arnar Sigmundsson varaformaður stjórnar Þekkingarseturs Vestmannaeyja.