Skip to content Skip to footer

Brautskráning í Glaðheimum 17. júní 2010

Það var fjölmenni í Glaðheimum á þjóðhátíðardaginn.  Tilefnið var að 26 fjarnemendur Háskólans á Akureyri höfðu brautskráðst sl. laugardag, en þar sem þeir höfðu um árabil notið þjónustu Fræðslunets Suðurlands og Háskólafélags Suðurlands var haldin hátíð hér syðra.  Hátíðin var það vel sótt að notast þurfti við fjarfundartækni til að miðla dagskránni milli rýma í Glaðheimum.  Athöfnin hófst með því að Anna Rut Arnardóttir lék tvö lög á fiðlu.

anna_rut_2

anna_rut

Sigurður Sigursveinsson framkvæmdastjóri Háskólafélagsins stýrði athöfninni.

sigsig_annarut

Nokkur ávörp voru flutt við athöfnina, það fyrsta flutti varaformaður stjórnar HfSu, Örlygur Karlsson skólameistari.

orlygur

Þá flutti Hafdís Skúladóttir formaður hjúkrunarfræðideildar Háskólans á Akureyri kveðjur frá háskólanum.

hafdis

Næstur í pontu var Óskar Reykdalsson lækningaforstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.

oskar

Þá var komið að Ásmundi Sverri Pálssyni framkvæmdastjóra Fræðslunets Suðurlands, en hann færði m.a. kandídötum rauða rós í kveðjuskyni.

asmundur_2

asmundur

Síðan kvaddi sér hljóðs fulltrúi kandídatanna, Katrín Sif Sigurgeirsdóttir

katrinsifkatrinsif_2

Að athöfn lokinni var boðið upp á hressingu og kandídatar stilltu sér upp til myndatöku í blíðviðrinu.

gladheimar_1

gladheimar_3