Um nýtt og spennandi verkefni er að ræða sem hefur það að markmiði að auka nýsköpun og uppbyggingu frumkvöðlaumhverfis á Suðurlandi. Ráðið er í starfið til tveggja ára með möguleika á framlengingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og uppbygging Hreiðursins; frumkvöðlasetra á Suðurlandi
- Samskipti við frumkvöðla, bakhjarla, mentora og aðra hagaðila
- Sókn í nýsköpunar- og þróunarsjóði fyrir stuðningsumhverfi frumkvöðla og nýsköpunar á Suðurlandi
- Samstarf við önnur frumkvöðlasetur og stoðkerfi nýsköpunar og frumkvöðlaumhverfis
- Stuðningur við frumkvöðla og fyrirtæki í nýsköpun
- Hugmynda- og verkefnaþróun einstaklinga og fyrirtækja í samvinnu við FabLab
- Almenn verkefna- og viðburðastjórn
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af vinnu með frumkvöðlum og atvinnuuppbyggingu og/eða nýsköpun
- Þekking og/eða reynsla af markaðsmálum og samfélagsmiðlum
- Reynsla af verkefnastjórnun
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Skipulagshæfni, metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð almenn tölvufærni – kunnátta í WordPress kostur
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku. Önnur tungumál kostur.
- Glaðlyndi, jákvæðni og dugnaður
Sótt er um starfið á www.mognum.is
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Ólafsdóttir / sigga@mognum.is
Umsóknarfrestur er til og með 9. október 2024
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.