Rafrænn kynningarfundur um englafjárfestingar

Vilt þú kynna þér englafjárfestingar?

12. febrúar kl 11.00 heldur Svava Ólafsdóttir, stofnandi iceBAN, kynningarfund um englafjárfestingar. 

Fundurinn er rafrænn og skráning á hann er hér:
Kynningarfundur 12. febrúar

 

Hvað eru englafjárfestingar?

Englafjárfestingar felast í því að einstaklingar fjárfesta eigið fé í sprotafyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum á frumstigi. Slíkar fjárfestingar eru oft gerðar á meðan fyrirtæki eru að þróa vöru, þjónustu eða viðskiptamódel. Auk fjármagns leggja englafjárfestar gjarnan til reynslu, þekkingu og tengslanet sem getur haft veruleg áhrif á þróun og vöxt fyrirtækja.

Nánari upplýsingar um iceBAN er hægt að finna á heimasíðu þeirra www.iceban.is