Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um náms- og rannsóknarstyrk fyrir 2012. Styrkurinn nemur að þessu sinni 1.100.000 kr.
Styrkurinn er ætlaður námsfólki sem vinnur að rannsóknarverkefni til lokaprófs á háskólastigi, verkefnið tengist Suðurlandi og þjóni ótvíræðum atvinnu- og/eða fræðilegum tilgangi fyrir Suðurland eða hluta Suðurlands.
Umsóknarfrestur er til 2. nóvember 2012 en umsóknum má skila hvort sem er til Fræðslunets Suðurlands (asmundur@fraedslunet.is) eða Háskólafélags Suðurlands (sigurdur@hfsu.is). Þeir Ásmundur og Sigurður veita jafnframt nánari upplýsingar í þessu sambandi.
Reglur sjóðsins má sjá hér .