- fundur stjórnar Háskólafélags Suðurlands haldinn í Fjölheimum 26.4. 2016 kl. 10:30-12.
Mættir eftirtaldir stjórnarmenn: Olga Lísa Garðarsdóttir, Rögnvaldur Ólafsson, Sigurður Þór Sigurðsson og Sveinn Aðalsteinsson. Helga Þorbergsdóttir og Kristín Hermannsdóttir voru í símasambandi, Einnig sat fundinn Sigurður Sigursveinsson framkvæmdastjóri, Dagný Magnúsdóttir boðaði forföll.
Helga Þorbergsdóttir ritaði fundargerð.
Dagskrá:
- Fundargerð 59.fundar samþykkt og undirrituð
- Drög að ársreikningi 2015. Auðunn Guðjónsson og Sigrún Einarsdóttir frá KPMG kynntu og ræddu drögin við stjórnarmenn. Ársreikningur verður lagður fyrir stjórnarfund fyrir aðalfund félagsins.
- Þórarinn Sólmundarson sérfræðingur í Mennta- og menningarmálaráðuneytinu gerði grein fyrir stöðu mála í stefnumörkun ráðuneytisins um málefni háskóla og vísinda. Unnið er að stefnumörkun til fimm ára sem er nýlunda. Rætt var um stöðu og möguleika HfSu í þessu sambandi. Athyglisverðir punktar komu fram í máli Þórarins sem eru gott innlegg í áframhaldandi þróunar- og stefnumótunarvinnu Háskólafélagsins.
- Önnur mál
Stefnt að því að halda aðalfund félagsins 1. júní n.k.