Skip to content Skip to footer

61. fundur

  1. fundur stjórnar Háskólafélags Suðurlands haldinn í Fjölheimum 1.6. 2016 kl. 11-13.

Mættir eftirtaldir stjórnarmenn: Dagný Magnúsdóttir, Olga Lísa Garðarsdóttir,  Rögnvaldur Ólafsson, Sigurður Þór Sigurðsson og Sveinn Aðalsteinsson. Helga Þorbergsdóttir og Kristín Hermannsdóttir mættu á fundinn eftir að hann hófst,  Einnig sat fundinn Sigurður Sigursveinsson framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.

  • Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
  • Fundargerð 60. stjórnarfundar staðfest með undirritun.
  • Ársreikningur 2015 staðfestur með undirritun stjórnar og framkvæmdastjóra
  • Drög að skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóra rædd og samþykkt
  • Málefni Laugarvatns. Kl. 13 í dag mun stjórnin sitja fund þar sem fulltrúar Bláskógabyggðar og Háskóla Íslands munu ræða áformaða nýja starfsstöð Rannsóknarseturs HÍ á Suðurlandi. Gert er ráð fyrir aðkomu Háskólafélagsins að breyttri starfsemi HÍ á Laugarvatni.
  • Samþykkt að tilnefna Eyrúnu Unni Guðmundsdóttur sem varamann Hrafnkels Guðnasonar í stjórn Þekkingarseturs Nýheima.
  • Fundi lauk laust fyrir kl. 13 að afloknum málsverði á Kaffi Krús á Selfossi.