Háskólanemendur sem vinna að verkefnum eða rannsóknum sem hafa skýra tengingu við Suðurland er hvattir til þess að sækja um.
Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands hefur nú formlega opnað fyrir móttöku umsókna og verður gáttin opin til 5. janúar 2025.
Hver umsókn er tekin fyrir af matsnefnd en skilyrði eru að verkefnið sé rannsóknarverkefni til BA/BS eða sambærilegrar gráðu eða hærri. Hægt er að skoða sjóðsreglurnar hér.
Tilkynnt verður um styrkhafa í febrúar en undanfarin ár hefur forseti Íslands afhent styrkinn með formlegum hætti. Við hvetjum sem flesta sem vinna að áhugaverðum verkefnum sem hafa skýra sunnlenska tenginu að sækja um. Nánari upplýsingar um styrkinn, reglur sjóðsins ásamt umsóknarformi er hægt að nágast hér.
Gangi ykkur vel