Skip to content Skip to footer

Pitch viðburður IceBAN og HFSU

Sunnlensk nýsköpun mætti sunnlenskum fjárfestum á Selfossi

Pitch-viðburður Háskólafélags Suðurlands og IceBAN fór fram þann 21. maí á Sviðinu á Selfossi og óhætt er að segja að það hafi verið kraftur í salnum.

Þrjú spennandi sunnlensk nýsköpunarfyrirtæki stigu á svið og kynntu hugmyndir sínar fyrir fjárfestum, hagaðilum og áhugasömum gestum.
Markmiðið var að tengja saman frumkvöðla og fjárfesta á Suðurlandi og sýna hversu mikil tækifæri búa í nýsköpun á svæðinu.

Fyrirtækin sem kynntu að þessu sinni voru Live Food, sem vinnur að vegan ostagerð, Marea, sem þróar varðveisluhúð fyrir agúrkur, og Haf Afl, sem nýtir strauma og kraft sjávar við þróun öruggrar og áreiðanlegrar raforku.

Jón Ingi, stjórnarformaður IceBAN, gaf gestum innsýn í heim englafjárfestinga og fór yfir hvað það felur í sér að styðja við sprotafyrirtæki á fyrstu stigum. Þá lagði Margrét Polly áherslu á mikilvægi þess að gera sunnlenska nýsköpun sýnilegri og byggja upp umhverfi sem styður við vöxt, tengingar og ný tækifæri.

Viðburðurinn var vel sóttur og stemningin sýndi svart á hvítu að áhuginn er til staðar. Það er greinilega undirliggjandi orka í sunnlensku nýsköpunarsamfélagi og þetta var aðeins byrjunin.

Við hlökkum til að halda næsta viðburð fljótlega. Þau sem vilja fylgjast með, tengjast eða taka þátt ættu að hafa augun opin – næst gæti verið fullt hús áður en þú nærð að skrá þig.