Skip to content Skip to footer

Afmælisþing Skógasafnsins

Afmælismálþing Byggðasafnsins í Skógum 

Í tilefni af 60 ára afmæli Byggðasafnsins í Skógum verður haldið málþing í héraðsskólahúsinu í Skógum fimmtudaginn 5. nóvember og hefst það kl. 10:30. Á málþinginu verður meðal annars farið yfir sögu safnsins og framtíðarhorfur þess. Í beinu framhaldi af málþinginu verður Safnahelgi á Suðurlandi formlega opnuð í Skógakaffi í Samgöngusafni.

–  Dagskrá  –

10:30 – 10:40     Setning  –  Formaður safnstjórnar, Ólafur Eggertsson

10:40 – 11:10     Þórður Tómasson  –  Saga Byggðasafnsins í Skógum

11:10 – 11:50     Gísli Sverrir Árnason  –  Hugmyndir að Fræðasetri í Skógum

11:50 – 12:10     Uggi Ævarsson  –  Hlutverk minjavarðar Suðurlands

sem hefur aðstöðu í   Skógum

12:10 – 13:10     Hádegishlé

13:10 – 13:30     Rögnvaldur Ólafsson  –  Hlutverk fræðasetra á landsbyggðinni og

möguleikar tengdir Skógum

13:30 – 13:50     Mjöll Snæsdóttir  –  Tækifæri í rannsóknum á starfssvæði

byggðasafnsins

13:50 – 14:10     Stefán Örn Stefánsson  –  Framtíðaruppbygging safnsins

14:10 – 14:30     Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður  –  Söfn í samtímanum

14:30 – 14:50     Formenn héraðsnefnda Rangárvallasýslu og Vestur-

Skaftafellssýslu

14:50 – 15:30     Umræður

15:30 – 15:45     Afhending heimildarmyndar um Þórð Tómasson

15:45 – 16:00     Sverrir Magnússon  –  Samantekt

16:00                   Málþingi slitið

Fundarstjóri verður Sigurður Sigursveinsson framkvæmdastjóri Háskólafélags Suðurlands.

Skráning á málþingið fer fram hjá Ragnhildi í síma 697-9986 eða á netfanginu ragnhildur@hfsu.is. Lokadagur skráningar er mánudagurinn 2. nóvember 2009. Ekkert þátttökugjald er á málþinginu.