Skip to content Skip to footer

Atvinnumálastefna neðri hluta Árnessýslu 2025 – 2029 er tilbúin til framkvæmdar.

Fulltrúar Flóahrepps, Hveragerðisbæjar og Sveitarfélagsins Árborgar ásamt Háskólafélagi Suðurlands og RATA hafa unnið nýja atvinnumálastefnu fyrir neðri hluta Árnessýslu.

Sameiginleg atvinnumálastefna þriggja sveitarfélaga í neðri hluta Árnessýslu er nú tilbúin til framkvæmdar. Sveitarfélögin Árborg, Flóahrepur og Hveragerðisbær hafa unnið ötullega að stefnunni ásamt starfsmönnum Háskólaféalgs Suðurlands undanfarna mánuði. Í seinni hluta verkefnsins kom Hafdís Huld Björnsdóttir hjá RATA inn í teymið og leiddi úrvinnslu stefnunnar en teymið átti virkilega gott samstarf.

Það kom margt áhugavert í ljós við söfnun gagna og við úrvinnslu þeirra. Íbúar tóku virkan þátt, annars vegar með þátttöku í íbúakönnun og á íbúafundum hins vegar. Raddir íbúa fengu sérstakan sess og vildi teymið með því endurspegla þá þætti sem íbúar kalla eftir í sveitarfélögunum.

Stefnan sem slík er leiðbeinandi skjal fyrir sveitarfélögin og framkvæmdaraðila þeirra og er hún sameiginleg fyrir sveitarfélögin þrjú. Markmið og áherslur eru sameiginlegar en taka þarf til greina að verkefni sveitarfélaganna eru mis langt á veg komin. Hvert sveitarfélag mun því vinna að innra skipulagi sem samræmist stefnunni samhliða samstarfi við hin sveitarfélögin.

Hægt er að nálgast stefnuna með því að smella á tengilin:  Atvinnumálastefna neðri hluta Árnessýslu