Skip to content Skip to footer

Auglýst eftir umsóknum í Vísinda- og rannsóknarsjóð Suðurlands

Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands

Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um náms- og rannsóknarstyrk fyrir árið 2022.  Úthlutað verður  kr. 1.600.000 í styrki þetta árið.

Styrkurinn er ætlaður námsfólki sem vinnur að rannsóknarverkefni til lokaprófs á háskólastigi. Verkefnið skal tengjast Suðurlandi og þjóna ótvíræðum atvinnu- og/eða fræðilegum tilgangi fyrir Suðurland eða hluta Suðurlands.

Umsóknarfrestur er til og með 28. nóvember næstkomandi og skulu umsóknir vera sendar á netföngin eyjolfur@fraedslunet.is eða ingunn@hfsu.is.

Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna  á www.fraedslunet.is og www.hfsu.is