4. mars sl. var haldin hér á Selfossi fjölsótt kynning á fjarnámi við Háskólann á Akureyri vegna náms næsta haust. Þeir sem misstu af þeirri kynningu geta nú mætt í Glaðheima þriðjudaginn 20. apríl kl. 18-19 og fylgst með kynningu á fjarnáminu. Nánari upplýsingar hér.
Þess má geta að gert er ráð fyrir að nýr hópur verði tekinn inn í fjarnámið í hjúkrunarfræði haustið 2011 hjá Háskólafélagi Suðurlands á Selfossi.