Skip to content Skip to footer

Fjarnám hjá Endurmenntun HÍ á vorönn 2010

Hægt er að hefja fjarnám í tvenns konar námi hjá Endurmenntun HÍ á vorönn 2010; annars vegar er um að ræða nýtt nám í Fjölmenningarfræði á meistarastigi, hins vegar Rekstrar- og viðskiptanám sem hægt er að nýta til BS gráðu.  Námið í Fjölmenningarfræði dreifist á tvær annir en Rekstrar- og viðskiptanámið á þrjár annir.  Ekki er um fullt nám að ræða heldur gert ráð fyrir því að hægt sé að stunda námið með vinnu.  Í Rekstrar- og viðskiptanáminu er einnig hægt að taka stök námskeið.

Umsóknarfrestur er til 1. desember 2009.  Nánari upplýsingar um Fjölmenningarfræðina má finna hér og hér, og um Rekstrar- og viðskiptanámið hér og hér.