Föstudaginn 25. september 2009 verður merkisdagur í sögu Háskólafélagsins. Þá stendur það fyrir málþingi um rannsóknir á Suðurlandi í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands og í kjölfarið verður nýja háskólasetrið í Glaðheimum formlega tekið í notkun. Dagskráin verður sem hér segir:
Málþing Háskólafélags Suðurlands um rannsóknir á Suðurlandi föstudaginn 25. september 2009 í Fjölbrautaskóla Suðurlands
Fundarstjóri Ágúst Sigurðsson rektor Landbúnaðarháskóla Íslands
14:00 Ávarp menntamálaráðherra, Katrínar Jakobsdóttur
14:10 Vísinda- og rannsóknastarf í íþróttum og heilsu á Íslandi
Dr. Erlingur Jóhannsson deildarforseti íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeildar Háskóla Íslands, Laugarvatni
14:30 Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði: háskólastofnun á landsbyggðinni
Dr. Ragnar Sigbjörnsson forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar Háskóla Íslands í jarðskjálftaverkfræði, Selfossi
14:50 Gunnarsholt: Miðstöð rannsókna í uppgræðslu, frærækt og uppbyggingu vistkerfa
Dr. Guðmundur Halldórsson rannsóknastjóri Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti
15:10 Árangursmælingar verkjameðferðar á HNLFÍ
Sigrún Vala Björnsdóttir bæklunarsjúkraþjálfari við Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði, lektor og doktorsnemi í HÍ og styrkþegi Vísinda- og rannsóknarsjóðs Fræðslunets Suðurlands 2007/2008
15:30 Háskólasetur Suðurlands: Landnotkunarsetur Háskóla Íslands
Dr. Tómas Grétar Gunnarsson forstöðumaður Háskólaseturs Suðurlands, Selfossi og Gunnarsholti
15:50 Málþingsslit
Steingerður Hreinsdóttir formaður stjórnar Háskólafélags Suðurlands
16:10 Vígsla Glaðheima – húsnæðis Háskólafélags Suðurlands, Háskólaseturs Suðurlands og Fræðslunets Suðurlands
Tónlist og léttar veitingar
Háskólafélag Suðurlands er einkahlutafélag í eigu sveitarfélaganna á Suðurlandi.
Tilgangur félagsins er að auka búsetugæði og styrkja efnahag á Suðurlandi með uppbyggingu þekkingarsamfélags.
Málþingið er öllum opið en sveitarstjórnarmenn, vísindamenn og aðrir áhugamenn um vísindi og rannsóknir á Suðurlandi eru sérstaklega hvattir til að sækja þingið.