Nú er í boði nýtt nám sem er ætlað öllum sem starfa við hvers konar sölu- og markaðssetningu á vöru og þjónustu. Símenntun Háskólans á Akureyri hefur umsjón með náminu, en kennarar í viðskiptadeild Háskólans á Akureyri skipuleggja námskeiðið. Námið er 36 kennslustundir, kennt verður á miðvikudögum kl. 16:15-18:50 frá 15. september til 1. desember. Hægt verður að sækja kennslustundir í fjarkennslu í Glaðheimum ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið í ígildi 6 ECTS háskólaeininga. Nánari upplýsingar hér og hér. |