Meistaranemar í sjálfbærri byggðafræði heimsóttu Háskólafélag Suðurlands

Meistaranemar í sjálfbærri byggðafræði heimsóttu Háskólafélag Suðurlands

Fyrsti nemendahópurinn í meistaranámi í sjálfbærri byggðafræði við Háskóla Íslands og Háskóla Íslands á Hólum heimsótti Háskólafélag Suðurlands á dögunum. Nemendurnir kynntu sér starfsemi Háskólafélagsins, SASS og þróun byggðar í Árborg.

Meistaranám í sjálfbærri byggðafræði er rannsóknartengt meistaranám sem boðið er upp sameiginlega á af Háskóla Íslands á Hólum og Háskóla Íslands. Námið er því samansett af námskeiðum beggja skólanna. Náminu er ætlað að mennta einstaklinga til starfa á sviði byggða- og samfélagsþróunar í dreifðum byggðum hér á landi eða erlendis. 

Markmið námsins er meðal annars að efla þekkingu og rannsóknir á málefnum dreifðra byggða, styrkja samstarf við þekkingar- og rannsóknasetur um land allt og stuðla að nýsköpun og jákvæðri byggðaþróun. Háskólafélag Suðurlands sem er aðili að Samtökum þekkingarsetra, átti fulltrúa í verkefnastjórn sem vann að þróun námsins.

Með nemendunum kom Anna Guðrún Edvardsdóttir, verkefnastjóri námsins, sem hélt meðal annars utan um þróun þess og samstarfshóp í aðdraganda námsins.

Kynning á byggðaþróun og samstarfi á Suðurlandi

Í heimsókninni fengu nemendur leiðsögn og kynningu á þeirri fjölbreyttu starfsemi sem fer fram í Fjölheimum þar Háskólafélagið hefur aðsetur. Ingveldur Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Háskólafélags Suðurlands, kynnti hlutverk félagsins við að efla aðgengi að háskólamenntun, styðja við rannsóknir og nýsköpun og tengja saman menntun, atvinnulíf og samfélag á Suðurlandi.

Þá kom Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar, í heimsókn og kynnti þróun Árborgar, áhrif mikillar fólksfjölgunar á innviði og framtíðarsýn sveitarfélagsins.

Í lokin kynnti Helga Kristín Sæbjörnsdóttir, verkefnastjóri hjá Háskólafélagi Suðurlands og jafnframt byggðaþróunarfulltrúi neðri hluta Árnessýslu, starfsemi Sambands sunnlenskra sveitarfélaga og hvernig samstarfi þessara tveggja stofnana og sveitarfélaganna á Suðurlandi er háttað, en mörg verkefni eru unnin í nánu og góðu samstarfi.

Heimsóknin gaf nemendum tækifæri til að kynnast því hvernig sveitarfélög, menntastofnanir og aðilar sem vinna að byggðaþróun starfa saman að viðfangsefnum sem tengjast sjálfbærri þróun byggða.

Háskólafélag Suðurlands þakkar nemendum og starfsfólki námsins fyrir ánægjulega heimsókn og hlakkar til áframhaldandi samstarfs.

Nánari upplýsingar um meistaranám í sjálfbærri byggðafræði og inntökuskilyrði er að finna hér.