Fjölbreytt námskeið verða haldin nú í vetur með tilstyrk IPA verkefnis Háskólafélagsins um Kötlu jarðvang. Nú er komið að námskeiði um hönnun minjagripa.
Ingunn Jónsdóttir vöruhönnuður (og starfsmaður HfSu og Matís) er leiðbeinandi á námskeiðinu. Fyrri daginn, 21. september verður farið yfir hvað minjagripur er í eðli sínu og hvað hann á að tákna. Hvað einkennir góða minjagripi og hvað ekki. Rætt um sérkenni staða og hvað hægt er að nýta til að gera góðan minjagrip. Hvað getur flokkast sem minjagripur; matur, upplifun, hlutir eða „brot úr náttúrunni“. Undirbúningur fyrir seinni dag: hver og einn hannar og þróar minjagrip sem hentar þeirra starfsemi, fullgerður hlutur eða á vel útfærðu hugmyndastigi.
Seinni dagur: farið yfir þá gripi sem þátttakendur hafa hannað. Skoðað, metið og rætt. Hvað er gott og hvað má gera betur. Allir fá tíma til að fara yfir sína hluti og fá álit frá hópnum.
21. september verður kennsla í fjarfundi kl. 10-15.30.
5. október mæta þátttakendur á Hvolsvöll frá 10-15:30 og hafa í farteskinu hugmyndir sínar og hönnun, spá í útfærslur, fá ráðleggingar um framhaldið og fleira. 12 stundir, verð 6.000 kr. Takmarkaður þátttakendafjöldi.
Nánari upplýsingar í síma 8570634 (Rannveig) eða á netföngin rannveig@katlageopark.is ogjonabjork@katlageopark.is