Sameiginlegt leiðsögunámskeið Kötlu jarðvangs, Háskólafélags Suðurlands og Fræðslunetsins hefst laugardaginn 28. september með sameiginlegum fræðslufundi. Næstu sex miðvikudagskvöld verða fyrirlestrar á Selfossi sem sendir verða með fjarfundarbúnaði til Hvolsvallar, Víkur og Kirkjubæjarklausturs. Þessir fyrirlestrar fjalla um jarðfræði, náttúrufræði, ferðamennsku, sögu og mannlíf svæðisins. Námskeiðinu lýkur laugardaginn 16. nóvember þegar nemendur setjast í rútu og flytja fræðslupistla sína. – Gert er ráð fyrir framhaldsnámskeiði á vorönn 2014.
Námskeiðið er alls 36 kennslustundir. Námskeiðið er niðurgreitt af IPA styrk Háskólafélagsins og með stuðningi frá Nordplus , norrænu menntaáætluninni, og er námskeiðsgjaldið því aðeins 10.000 kr.
Innritun fer fram hjá Fræðslunetinu í síma 560 2030 eða í tölvupósti, steinunnosk@fraedslunet.is. Gefa þarf upp nafn, kennitölu, heimilisfang og símanúmer.