Þriðjudaginn 2. febrúar fóru nemendur Matvælabrúarinnar í heimsókn í Matís í Reykjavík og dvöldust þar daglangt á námskeiði í skynmati. Kennarar voru Kolbrún Sveinsdóttir og Aðalheiður Ólafsdóttir. Í námskeiðinu fengu nemendur yfirsýn yfir hvað skynmat er og hvernig það er notað í matvælaframleiðslu, vöruþróun og gæðaeftirliti. Kennslan var bæði bókleg og verkleg, nemendur lærðu að þekkja grunnbragðefni, nota lyktarskyn og kynntust ólíkum aðferðum við skynmat. Að auki var nemendum kynnt hvernig prófanir á bragði, lykt og áferð vöru eru notaðar við neytendakannanir og mismunandi aðferðir við neytendakannanir. Niðurstöður verklegu æfinganna voru teknar saman með sömu aðferðum og beitt er við rannsóknir Matís og urðu umræður fjörugar og fróðlegar. Kærar þakkir Matís fyrir lærdómsríkan og skemmtilegan dag.