Skip to content Skip to footer

Nýtt námsver vígt

Í dag, 1. nóvember 2013, á allraheilagramessu, var vígt námsver Háskólafélags Suðurlands og Fræðslunetsins – símenntunar á Suðurlandi í Kirkjubæjarstofu á Kirkjubæjarklaustri. Fyrir rúmum þremur vikum var vígð sambærileg aðstaða í Kötlusetri í Vík í Mýrdal, en bæði þessi verkefni voru fjármögnuð af samningi Sambands sunnlenskra sveitarfélaga, sveitarfélagsins Hornafjarðar og menntamálaráðuneytisins um verkefnið Eflingu menntunar, rannskókna og nýsköpunar á Suðurlandi.

Árni Rúnar Þorvaldsson, starfsmaður Fræðslunetsins og Háskólafélagsins á svæðinu, stýrði samkomunni.  Auk hans fluttu ávörp Sigurður Sigursveinsson framkvæmdastjóri Háskólafélagsins, Ásmundur Sverrir Pálsson framkvæmdastjóri Fræðslunetsins, Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri Sambands sunnlenskra sveitarfélaga, Jóna Sigurbjartsdóttir stjórnarmaður í Eldvilja, eiganda hússins, Ólafía Jakobsdóttir forstöðumaður Kirkjubæjarstofu og Silja Dögg Gunnarsdóttir þingmaður Suðurkjördæmis. Að athöfninni lokinni bauð Kirkjubæjarstofa upp á kaffiveitingar í tilefni dagsins.

Það var mál manna að opnun námsversins markaði viss tímamót og almennri ánægju var lýst með það hvernig til hefði tekist með þessum áfanga í uppbyggingu innviða í Skaftárhreppi.

arnirunar

Árni Rúnar Þorvaldsson starfsmaður Fræðslunetsins og Háskólafélagsins í Vík og á Kirkjubæjarklaustri bauð viðstadda velkomna

 

sigsig

Sigurður Sigursveinsson framkvæmdastjóri Háskólafélagsins flutti ávarp

asp

Ásmundur Sverrir Pálsson framkvæmdastjóri Fræðslunetins ávarpaði samkomuna

olafia

Ólafía Jakobsdóttir forstöðumaður Kirkjubæjarstofu var ánægð með daginn

jona

Jóna Sigurbjartsdóttir stjórnarmaður í Eldvilja, eiganda hússins, flutti ávarp

silja

Silja Dögg Gunnarsdóttir þingmaður Suðurkjördæmis óskaði heimamönnum til hamingju með daginn

blom

Ásmundur Sverrir færði Ólafíu blómvönd frá Fræðslunetinu og Háskólafélaginu

lyklaafhending

Ólafía færði Árna Rúnari lykla að námsverinu – á sauðavölu!

gestir 3

Fjöldi gesta var viðstaddur vígsluna

getir2

gestir