Þann 26.febrúar nk verður haldinn Stafrænn háskóladagur en fyrirkomulagið er á þann hátt að nemendur, kennarar, náms- og starfsráðgjafar og starfsfólk allra háskóla landsins verða til taks fyrir gesti síðunnar í netspjalli. Áhugasömum gefst þá tækifæri til að kynna sér allt háskólanám sem er í boði á landinu á einum vettvangi, inni á vefsíðunni www.haskoladagurinn.is frá kl.12-15. Á síðunni er jafnframt hægt að leita í öllum námsleiðum sem eru í boði í íslenskum háskólum.
Háskólafélag Suðurlands hvetur alla áhugsama að nýta sér það tækifæri að komast í beint samband við fulltrúa frá öllum námsleiðum í grunnnámi háskólanna og spyrja um hvaðeina sem lýtur að drauma náminu sem og eiga samtal um námsleiðirnar og háskólalífið.