Skip to content Skip to footer

Vísinda- og rannsóknasjóður Suðurlands

Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um náms- og rannsóknarstyrk fyrir árið 2014.  Styrkurinn nemur 1.200.000 kr.

Styrkurinn er ætlaður námsfólki sem vinnur að rannsóknarverkefni til lokaprófs á háskólastigi. Verkefnið skal tengjast Suðurlandi og þjóna ótvíræðum atvinnu- og/eða fræðilegum tilgangi fyrir Suðurland eða hluta Suðurlands.

Umsóknarfrestur er til 3. nóvember 2014.

Reglur sjóðsins má sjá hér en umsóknum má skila hvort sem er til Fræðslunetsins – símenntunar á Suðurlandi (asmundur@fraedslunet.is) eða Háskólafélags Suðurlands (sigurdur@hfsu.is).  Þeir Ásmundur og Sigurður veita jafnframt nánari upplýsingar í þessu sambandi