Skip to content Skip to footer

Evrópurútan verður á Selfossi 26. september í Tryggvaskála.

Evrópurútan

Evrópurútan heimsækir Selfoss 26. september nk. og verður til húsa í Tryggvaskála milli kl. 14 og 16.

Evrópurútan á ferð um landið.
 
Í tilefni þess að 30 ár eru síðan að samningur um Evrópska efnahagssvæðisins (EES) tók gildi, og veitti Íslandi aðgang að auknum tækifærum til samstarfs í Evrópu, mun Evrópurútan fara hringinn um landið í september þar sem vakin verður athygli á árangri af Evrópuverkefnum í heimabyggð og tækifærum til framtíðar í alþjóðasamstarfi.
Evrópurútan mun mæta á Selfoss og bjóða íbúum til fundar og samtals um tækfæri í heimabyggð til alþjóðasamstarfs í gegnum fjölmargar samstarfsáætlanir Evrópusambandins.
 
Fundurin verður haldinn í Tryggvaskála fimmtudaginn 26. september frá kl. 14-16.
 
Evrópurútan er skipulögð af Rannís sem hefur umsjón með öllum helstu samstarfsáætlunum á sviði menntunar, menningar, vísinda og fyrirtækjasamstarfs og mun á hringferð sinni um landið veita upplýsingar um:
  • Erasmus+
  • Horizon Europe
  • Creative Europe
  • European Solidary Corps
  • Enterprise Europe Network
  • Digital Europe
  • LIFE
  • Nordplus
Við hvetjum öll til að mæta of kynna sér tækifæri til alþjóðasamstarfs til framtíðar fyrir sína heimabyggð.
 
Óskað er eftir skráningu á viðburðina fyrir áætlun veitinga á hverjum stað fyrir sig.
 
Nánar má lesa um viðburðaröðina á:https://www.rannis.is/vidburdir/evropusamvinna/evropurutan/
Hlekkur á facebook viðburður: