Skip to content Skip to footer

Fjarnám á háskólastigi á Suðurlandi

Frá og með vorönn 2010 flyst öll umsýsla með fjarnámi á háskólastigi á Suðurlandi frá Fræðsluneti Suðurlands til Háskólafélags Suðurlands.  Háskólafélagið hefur nú yfir fjarffundarbúnaði að ráða í þremur kennslustofum í Glaðheimum, Tryggvagötu 36 á Selfossi.  Utan kennslustunda verður aðstaðan í Glaðheimum aðgengileg fjarnemum til náms og samvinnu, hvort sem er á daginn, kvöldin eða um helgar.